Landsvirkjun og HS Orka munu selja Thorsil orku í Helguvík

Landsvirkjun og Thorsil hafa undirritað drög að raforkusamningi
Landsvirkjun og Thorsil hafa undirritað drög að raforkusamningi
Auglýsing

Lands­virkjun og Thorsil hafa kom­ist að sam­komu­lagi um drög að raf­magns­samn­ingi um afhend­ingu á raf­magni til kís­il­vers sem Thorsil ætlar að reisa í Helgu­vík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Landsvikj­un.  

Fyrr í mán­uð­inum hafði Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, greint frá því að búið væri að tryggja orku­af­hend­ingu til kís­il­vers­ins. Hann vildi hins vegar ekki upp­lýsa hvaðan orkan kæmi né á hvaða verði hún yrði  keypt. Þá sagði Lands­virkjun að ekki væri búið að ganga frá neinum samn­ing­um. 

Kís­il­verið á að gang­setja á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018, segir Lands­virkj­un. Sam­kvæmt samn­ings­drög­unum mun Lands­virkjun afhenda Thorsil allt að 67 MW, en orkan verður afhent í áföngum úr núver­andi afl­stöðvakerfi Lands­virkj­unar ásamt stækkun við Búr­fells­virkj­un. Síð­asti áfangi orku­af­hend­ing­ar­innar eru sagður koma til við gang­setn­ingu Hvamms­virkj­unar um mitt ár 2020. 

Auglýsing

Hákon sagði við Frétta­blaðið fyrr í mán­uð­inum að fyr­ir­tækið hefði tryggt sé 87 MW orku, sem áætlað væri að þyrfti til að fram­leiða 54 þús­und tonn af kís­il­málmi á ári.

Sam­kvæmt Lands­virkjun munu samn­ings­drögin milli Lands­virkj­unar og Thorsil nú fara í und­ir­bún­ings­ferli hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og nið­ur­stöðu stofn­un­ar­innar verður beðið áður en samn­ing­ur­inn verður tek­inn til umfjöll­unar og end­an­legrar afgreiðslu í stjórn Lands­virkj­un­ar. 

Þá hefur HS Orka til­kynnt að félagið hafi und­ir­ritað orku­sölu­samn­ing við Thorsil um afhend­ingu á allt að 32 MW til kís­il­vers­ins. 

Lands­net og Thorsil skrif­uðu í síð­ustu viku undir sam­komu­lag um raf­orku­flutn­inga fyrir kís­il­ver Thorsil í Helgu­vík. Kostn­aður við það að tengja kís­il­verið við meg­in­flutn­ings­kerfi Lands­nets er um 2,5 millj­arðar króna, en teng­ingin verður gerð með lagn­ingu 132 kíló­volta jarð­strengs á milli Fitja og Stakks, tengi­virkis Lands­nets, sem verið er að byggja í Helgu­vík. Fram­kvæmdir eiga að hefj­ast næsta haust.

Í DV í byrjun mán­að­ar­ins var greint frá því að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Hákon Björns­son vildi ekki upp­lýsa um hversu háa upp­hæð er um að ræða.

Thorsil er stærsti við­skipta­vinur Reykja­nes­hafn­ar, sem hefur fengið greiðslu­frest út nóv­em­ber­mánuð til að greiða skuldir sín­ar. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafn­ar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lán­um, aukast ekki á meðan stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None