Launakönnun á RÚV stungið undir stól

15997511475-d225463e7d-z.jpg
Auglýsing

Nið­ur­stöð­u­m svo­kall­aðrar jafn­launa­út­tektar sem end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC gerði fyrir RÚV árið 2012, í sam­ræmi við sam­þykkta jafn­rétt­is­á­ætlun rík­is­fjöl­mið­ils­ins, var stungið undir stól í fram­kvæmda­stjórn RÚV og aldrei birt starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins eins og kveðið var á um í jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni. Reiði er á meðal kvenna innan RÚV vegna þessa, sem hafa kraf­ist þess að launa­könn­unin verði birt.

Með því að fylgja ekki ­jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni, sem RÚV setti sér eins og lög gera ráð fyr­ir, gerð­ist rík­is­fjöl­mið­ill­inn þar með brot­legur við jafn­rétt­islög.

Í jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV fyrir árin 2011 til 2014 segir að óháður aðili verði feng­inn til að vinna launa­könnun fyrir fyr­ir­tæk­ið, sem verði svo lögð fyrir fram­kvæmda­stjórn og helstu nið­ur­stöður gerðar aðgengi­legar starfs­fólki á innri vef. „Komi í ljós kyn­bund­inn launa­munur skal hann strax leið­rétt­ur,“ eins og segir í jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni. Mark­mið­ið: Að karlar og konur fái sömu laun og kjör fyrir sömu eða jafn­verð­mæt störf. Eins og áður segir hafa nið­ur­stöður jafn­launa­út­tekt­ar­innar aldrei komið fyrir sjónir starfs­manna RÚV.

Auglýsing

Nið­ur­stöður kynntar í fram­kvæmda­stjórn, svo ekk­ert meir



Heim­ildir Kjarn­ans herma að Berg­lind Berg­þórs­dótt­ir, þáver­andi mannauðs­stjóri RÚV, sem hafði for­ræði yfir gerð jafn­launa­út­tekt­ar­inn­ar, hafi kynnt fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins helstu nið­ur­stöður henn­ar á fundi í mars árið 2013. Þar hafi svo verið tekin ákvörðun um að birta ekki nið­ur­stöður könn­un­ar­inn­ar, vegna athuga­semda fram­kvæmda­stjórnar RÚV við aðferð­ar­fræði PwC við fram­kvæmd henn­ar. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans kom fram allt að fimmtán pró­senta kyn­bund­inn launa­munur hjá RÚV í launa­könn­un­inni. Þá herma heim­ildir Kjarn­ans að engar form­legar athuga­semdir við fram­kvæmd jafn­launa­út­tekt­ar­innar hafi borist PwC.

Í sam­tali við Kjarn­ann kvaðst Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, ekki muna eftir umræddri launa­könnun og vís­aði á Berg­lindi Berg­þórs­dótt­ur, sem vildi engum spurn­ingum blaða­manns svara.

Reiði á meðal kvenna hjá RÚV - núver­andi stjórn ypptir öxlum



Hópur kvenna innan RÚV hefur sótt fast að fá launa­könnun PwC afhenta, án árang­urs. Þá fór full­trúi trún­að­ar­manna hjá RÚV á fund hjá Magn­úsi Geir Þórð­ar­syni, útvarps­stjóra, í lok febr­úar og fór fram á að helstu nið­ur­stöður launa­könn­un­ar­innar verði birt­ar. Nið­ur­stöð­urnar hafa enn ekki verið birt­ar, en í sam­tali við Kjarn­ann kvaðst Magnús Geir engar upp­lýs­ingar hafa um launa­könn­un­ina, né hvar hana sé að finna.

Jafn­rétt­is­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að stofn­anir og fyr­ir­tæki fari eftir sam­þykktum jafn­rétt­is­á­ætl­un­um, hefur ekki óskað form­lega eftir því að launa­könn­unin verði birt, eins og kveðið er á um í jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV. Til þess þarf Jafn­rétt­is­stof­a að hafa rök­studdan grun um brot á jafn­rétt­islög­um, en stofn­un­inni hafa engar form­legar kvart­anir borist vegna máls­ins.

Lít­ill áhugi yfir­stjórnar á jafn­rétt­is­málum



Björg Eva Erlends­dótt­ir, sem var stjórn­ar­for­maður RÚV þegar launa­könn­unin var gerð, rekur ekki minni til að nið­ur­stöður hennar hafi verið kynntar í stjórn RÚV. „Og aðrir stjórn­ar­menn sem ég hef talað við muna ekki heldur eftir því. Það var í gildi jafn­rétt­is­á­ætl­un, en eftir því sem ég best veit þá var aldrei ­byrjað að vinna eftir henni og við í stjórn­inni ýttum á eftir því að það yrði gert á stjórn­ar­fund­um. En það var nú mjög aug­ljóst í raun­inni af sam­setn­ingu yfir­stjórn­ar­inn­ar, eins og hún leit út þá, að áhugi á jafn­rétt­is­málum var ekki mik­ill.“

Þá kveðst Björg Eva hafa for­vitn­ast um launa­könn­un­ina nýver­ið. „En hafi henni verið lokið ein­hvern tím­ann, sem ég veit ekki, þá er hún ónot­hæf í dag eftir þær breyt­ingar sem Rík­is­tút­varpið hefur farið í gegnum þannig að það þyrfti að byrja upp á nýtt.“

Ný jafn­rétt­is­á­ætlun gerir ráð fyrir nýrri jafn­launa­út­tekt



Sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV sem gildir fyrir árin 2015 til 2018, sem Jafn­rétt­is­stofa hefur sam­þykkt, og bíður birt­ing­ar, er gert ráð fyrir sam­bæri­legri launa­könnun innan rík­is­fjöl­mið­ils­ins á tíma­bil­inu.

„Skortur á jafn­rétti í fjömiðlum bæði í stjórnum og umfjöllun um sam­fé­lags­mál hefur verið æpandi árum sam­an, og líka á Rík­is­út­varp­inu. Og ég bara harma það mjög mikið að það var ekki bætt úr því í minni tíð sem stjórn­ar­for­mað­ur, ég hefði viljað það. Von­andi verða skref tekin í rétta átt núna, og það eru ein­hver merki um það, en betur má ef duga skal,“ segir Björg Eva Erlends­dótt­ir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None