Óleiðréttur launamunur kynjanna á Íslandi nam 18,3 prósentum árið 2014 og minnkaði frá fyrra ári úr 19,9 prósentum. Á almenna vinnumarkaðnum mældist launamunurinn 19,9 prósent en 13,2 prósent hjá opinberum starfsmönnum, þar var munurinn 14,1 prósent hjá ríki og 6,7 prósent hjá sveitarfélögum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Hagstofunnar.
Þar kemur jafnframt fram að lítill launamunur hjá starfsmönnum sveitarfélaga haldist í hendur við litla dreifingu launa í þeim hópi og hátt hlutfall kvenna, en konur eru um 75 prósent starfsmanna sveitarfélaga.
Mynd sem birtist með frétt Hagstofunnar í dag. Mynd: Hagstofan.is
Mesti launamunurinn í fjármála- og vátryggingageiranum
Mesti launamunur kynjanna eftir atvinnugreinum mælist í fjármála- og vátryggingastarfsemi, eða sem nemur 37,5 prósentum, en minnsti launamunurinn eftir atvinugreina er í heilbrigðis- og félagsþjónustu eða 7,4 prósent. Samkvæmt frétt Hagstofunnar skýrist mikill launamunur í fjármála- og vátryggingastarfsemi af mikilli dreifingu launa í greininni.
Launamunur kynjanna eftir atvinnugreinum. Mynd: Hafstofan.is
Í samantekt Hagstofunnar er launamunur skilgreindur sem óleiðréttur, þar sem ekki er tekið tillit til skýringarþátta sem geta haft áhrif á laun einstaklinga. Dæmi um slíka skýringarþætti eru starf, menntun, aldur, starfsaldur og fleira. Þannig er ekki tekið tillit til þess að starfsval kynjanna er oft á tíðum ólíkt.
Þá ber að athuga að greidd laun fyrir yfirvinnu og fjöldi yfirvinnustunda er inni í útreikningum en hver yfirvinnustund er að jafnaði dýrari en hver stund í dagvinnu. Því meiri yfirvinna sem er inni í laununum, því hærra verður tímakaupið og því hefur ólíkt vinnutímamynstur kynjanna áhrif á niðurstöðurnar. Karlar vinna að jafnaði meira en konur og voru vikulegar greiddar stundir fullvinnandi karla 44,1 að meðaltali árið 2014 en vikulegar greiddar stundir fullvinnandi kvenna voru 41,9. Með því að reikna óleiðréttan launamun á þennan hátt fæst ákveðin mynd af launamyndun kynjanna á vinnumarkaði sem kann að skýrast af þeim þáttum sem á undan eru taldir.