Launamunur kynjanna var 18,3 prósent árið 2014

10016471563_0af3028882_z.jpg
Auglýsing

Óleið­réttur launa­munur kynj­anna á Íslandi nam 18,3 pró­sentum árið 2014 og minnk­aði frá fyrra ári úr 19,9 pró­sent­um. Á almenna vinnu­mark­aðnum mæld­ist launa­mun­ur­inn 19,9 pró­sent en 13,2 pró­sent hjá opin­berum starfs­mönn­um, þar var mun­ur­inn 14,1 pró­sent hjá ríki og 6,7 pró­sent hjá sveit­ar­fé­lög­um. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Hag­stof­unnar.

Þar kemur jafn­framt fram að lít­ill launa­munur hjá starfs­mönnum sveit­ar­fé­laga hald­ist í hendur við litla dreif­ingu launa í þeim hópi og hátt hlut­fall kvenna, en konur eru um 75 pró­sent starfs­manna sveit­ar­fé­laga.

Mynd sem birtist með frétt Hagstofunnar í dag. Mynd: Hagstofan.is Mynd sem birt­ist með frétt Hag­stof­unnar í dag. Mynd: Hag­stof­an.is

Auglýsing

Mesti launa­mun­ur­inn í fjár­mála- og vátrygg­inga­geir­anum



Mesti launa­munur kynj­anna eftir atvinnu­greinum mælist í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi, eða sem nemur 37,5 pró­sent­um, en minnsti launa­mun­ur­inn eftir atvinu­greina er í heil­brigð­is- og félags­þjón­ustu eða 7,4 pró­sent. Sam­kvæmt frétt Hag­stof­unnar skýrist mik­ill launa­munur í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi af mik­illi dreif­ingu launa í grein­inni.

Launamunur kynjanna eftir atvinnugreinum. Mynd: Hafstofan.is Launa­munur kynj­anna eftir atvinnu­grein­um. Mynd: Haf­stof­an.is

Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar er launa­munur skil­greindur sem óleið­rétt­ur, þar sem ekki er tekið til­lit til skýr­ing­ar­þátta sem geta haft áhrif á laun ein­stak­linga. Dæmi um slíka skýr­ing­ar­þætti eru starf, mennt­un, ald­ur, starfs­aldur og fleira. Þannig er ekki tekið til­lit til þess að starfs­val kynj­anna er oft á tíðum ólíkt.

Þá ber að athuga að greidd laun fyrir yfir­vinnu og fjöldi yfir­vinnu­stunda er inni í útreikn­ingum en hver yfir­vinnu­stund er að jafn­aði dýr­ari en hver stund í dag­vinnu. Því meiri yfir­vinna sem er inni í laun­un­um, því hærra verður tíma­kaupið og því hefur ólíkt vinnu­tíma­mynstur kynj­anna áhrif á nið­ur­stöð­urn­ar. Karlar vinna að jafn­aði meira en konur og voru viku­legar greiddar stundir full­vinn­andi karla 44,1 að með­al­tali árið 2014 en viku­legar greiddar stundir full­vinn­andi kvenna voru 41,9. Með því að reikna óleið­réttan launa­mun á þennan hátt fæst ákveðin mynd af launa­myndun kynj­anna á vinnu­mark­aði sem kann að skýr­ast af þeim þáttum sem á undan eru tald­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None