Landsbankinn hf. og slitastjórn LBI hf. hafa komist að samkomulagi um breytingar á uppgjörsskuldabréfum sem samið var um í desember 2009, en eftirstöðvar þeirra eru nú að jafnvirði um 226 milljarðar króna. Af hálfu slitastjórnar LBI hf. er gerður fyrirvari um að tilteknar undanþágur fáist í samræmi við lög um gjaldeyrismál.
Lokagreiðsla verður innt af hendi í október 2026 í stað október 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. „Endurgreiðslur verða á tveggja ára fresti og dreifast nokkuð jafnt. Landsbankinn hefur heimild til að greiða skuldina að hluta eða að fullu upp án kostnaðar, hvenær sem er á tímabilinu,“ segir í tilkynningu Landsbankans.
Samkomulagið hefur mikla þýðingu fyrir íslenska þjóðarbúið þar sem fyrirsjáanlegt var að greiðslubyrðin gætti leitt til mikils vanda ef ekki hefði komið til lengingar lána. Samkomulagið liðkar enn fremur fyrir möguleikanum á því að afnema fjármagnshöft.
Vaxtakjör verða óbreytt til október árið 2018, þ.e. 2,9% álag ofan á LIBOR vexti, að því er segir í tilkynningunni. „Eftir það fer vaxtaálagið stighækkandi og verður 3,5% vegna gjalddaga 2020 og að lokum 4,05% vegna lokagjalddagans árið 2026. Hver gjalddagi á tímabilinu frá 2020 til 2026 er að jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna.“
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir í tilkynningu frá Landsbankanum að samkomulagið mjög mikilvægt. „Skilmálarnir eru mjög vel viðráðanlegir fyrir Landsbankann og mun þessi breyting auðvelda honum alþjóðlega lánsfjármögnun. Þá felur samkomulagið í sér að sérstökum hömlum á arðgreiðslur hefur verið hrundið úr vegi, til hagsbóta fyrir hluthafa bankans. Samkomulagið er jafnframt mikilvægur þáttur í að leysa úr þeim stóru viðfangsefnum sem tengjast skuldastöðu þjóðarbúsins og afnámi gjaldeyrishafta. Við teljum þennan áfanga því mjög mikilvægan fyrir íslenskt efnahagslíf sem og Landsbankann.”
Skuldabréfin voru upphaflega gefin út á grundvelli ákvarðana Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvæðum neyðarlaganna. Fjárhæðin var ákveðin sem mismunur á virði eigna og skulda sem fluttar voru yfir til Landsbankans.