Leyniskýrslan sem Sigmundur Davíð vitnaði í fjallaði um orð aðstoðarmanns hans

sdg-1.jpg
Auglýsing

Ummæli sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði að væri nið­ur­staða í punkta­formi í meintum leyni­skýrslum kröfu­hafa, og snér­ust um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæfi ekki eftir íslenska hags­muni, voru höfð eftir Ásmundi Ein­ari Daða­syni, aðstoð­ar­manni hans. Því vitn­aði for­sæt­is­ráð­herr­ann í end­ur­sögn af orðum aðstoð­ar­manns síns þegar hann rakti inni­hald hinna meintu leyni­skýrslna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Leyni­skýrsl­urnar frétta­bréf Ein­ars Karls



Ræða Sig­mundar Dav­íðs á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins á föstu­dag vakti mikla athygli. Þar sagð­ist hann meðal ann­ars vita að full­trúar kröfu­hafa hafi tekið saman per­sónu­legar upp­lýs­ingar um stjórn­mála­menn, blaða­menn og aðra sem hafa tjáð sig um losun hafta eða eru taldir lík­legir til að geta haft áhrif á gang mála. Í sumum til­vikum hafi verið gerðar sál­grein­ingar á fólki til að átta sig á því hvernig best væri að eiga við það. Þessum upp­lýs­ingum væri safnað saman í leyni­skýrsl­um.

„Í einni af fyrstu skýrsl­unum kom fram að ein helsta ógnin sem steðj­aði að vog­un­ar­sjóð­unum við að ná mark­miðum sín­um, ein helsta hindr­unin í því að þeir gætu farið sínu fram, héti Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

Og í einni af nýj­ustu skýrsl­unum eru helstu nið­ur­stöður raktar í punkta­formi á for­síðu. Þar blasir við eft­ir­far­andi nið­ur­staða, orðuð svo á ensku: The Progressive Party stands firm on Icelandic inter­ests.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gefur ekki eftir íslenska hags­muni. Það mega þeir eiga þessir karl­ar, þeir eru með helstu stað­reyndir á hrein­u,“ sagði Sig­mundur Dav­íð.

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld var greint frá því að full­trúar slita­stjórna Glitnis og Kaup­þings neiti því stað­fast­lega að hafa stundað njósnir eða látið gera fyrir sig sál­grein­ingar á stjórn­mála­mönnum og blaða­mönnum og kann­ist ekki við að hafa séð slíkar skýrsl­ur.

Orðið sem Sigmundur Davíð vitnaði til í ræðu sinni komu úr aðsendri grein aðstoðarmanns hans, Ásmundar Einars Daðasonar. Orðið sem Sig­mundur Davíð vitn­aði til í ræðu sinni komu úr aðsendri grein aðstoð­ar­manns hans, Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar.

Í frétta­skýr­ingu á DV.is í dag er síðan full­yrt að leyni­skýrsl­urnar sem Sig­mundur Davíð vísi til séu frétta­bréf sem Einar Karl Har­alds­son, almanna­teng­ill sem vinnur sem ráð­gjafi slita­stjórnar Glitn­is, sendir reglu­lega út til kröfu­hafa, að jafn­aði tvisvar í mán­uði. Í þeim er farið yfir helstu fréttir í íslenskum fjöl­miðlum sem gætu verið á áhuga­sviði kröfu­hafa.

Segir flokks­menn hafa fagnað eigin orðum á flokks­þingi



Í fréttum Stöðvar 2 kom einnig fram að í nýjasta frétta­bréfi kröfu­hafanna, því  77. í röð­inni, segi frá því að nið­ur­staðan sem Sig­mundur Davíð rakti, að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gefi ekki eftir íslenska hags­muni, hafi í reynd verið end­ur­sögn á aðsendri grein sem Ásmundur Einar Daða­son, einn aðstoð­ar­manna Sig­mundar Dav­íðs, birti í Morg­un­blað­inu í upp­hafi árs. Í frétta­bréf­inu stend­ur: „„Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gefur ekki eftir íslenska hags­mun­i.“ Þessi yfir­lýs­ing hlaut lófatak við­staddra á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það má telja kald­hæðið að yfir­lýs­ingin er byggð á orðum póli­tísks aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra sem hann setti fram í grein í Morg­un­blað­inu 22. Jan­úar 2015. Flokks­menn fögn­uðu því eigin orðum á flokks­þing­inu. Góður spuni, að mínu álit­i“.

Kjarn­inn fjall­aði um grein Ásmundar Ein­ars í jan­ú­ar. Hana má lesa hér.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None