Lífeyrissjóðir gera alvarlegar athugasemdir við kaupréttaráætlun starfsfólks Símans

S--minn_01-1.jpg
Auglýsing

Sex líf­eyr­is­sjóðir sem eiga hlut í Sím­anum gera alvar­legar athuga­semdir við kaup­rétt­ar­á­ætlun sem stjórn félags­ins ætlar að leggja fyrir hlut­hafa­fund sem hald­inn verður næst­kom­andi þriðju­dag, 8. sept­em­ber. Þeir telja að áætl­unin kunni að leiða til þess að starfs­fólki Sím­ans verði afhentir hlutir í félag­inu undir mark­aðsvirði, en hún gerir ráð fyrir því að starfs­menn­irnir fái að kaupa hluti fyrir um tvo millj­arða króna á fimm ára tíma­bili.

Athuga­semd­irnar eru af ýmsum toga en alvar­leg­asta gagn­rýnin snýr að því að allir starfs­menn Sím­ans eigi að fá að kaupa fyrir 600 þús­und krónur á ári í fimm ár á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Það er sama gengi og æðstu stjórn­endur Sím­ans, ásamt hópi inn­lendra og erlendra fjár­festa, fékk að kaupa fimm pró­sent hlut af Arion banka í síð­ustu viku. Sá hópur greiddi 1.330 millj­ónir króna fyrir hlut­inn. 

Á meðal þeirra sem keyptu var Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans. Hann hafði einnig frum­kvæði af því að fal­ast eftir hlutnum fyrir hönd hóps­ins.

Auglýsing

Telja starfs­menn fá afhenta hluti undir mark­aðsvirði

Sam­kvæmt Morg­un­blað­inu gera líf­eyr­is­sjóð­irnir athuga­semdir við að verð á hlutum í félag­inu sé fast­sett fimm ár fram í tím­ann í stað þess að taka breyt­ingum í sam­ræmi við þróun mark­aðs­verðs.Þetta gæti leitt til þess að starfs­menn fái afhent hluti undir mark­aðsvirði og sam­hliða muni hlutir ann­arra hlut­hafa, sem eru að mestu líf­eyr­is­sjóðir auk Arion banka, skerð­ast.

Starfs­menn­irnir sem eiga að fá kaup­rétt eru um 680 tals­ins. Alls munu þeir geta, sam­kvæmt áætl­un­inni, keypt hluti í Sím­anum fyrir um tvo millj­arða króna næstu fimm árin og eign­ast með því 7,7 pró­sent hlut í félag­inu. Sím­inn verður skráður á markað undir lok þessa árs.

Í Morg­un­blað­inu segir að kergja líf­eyr­is­sjóð­anna sex, sem eru Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Festa, Gildi, Lífs­verk Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda og Stafir, snúi einnig að því að þeir hgafi ekki fengið kynn­ingu á kaup­rétt­ar­á­ætl­un­inni áður en hún var kynnt form­lega í síð­ustu viku. Sjóð­irnir eiga sam­tals rúm 15 pró­sent í Sím­an­um.

Sá líf­eyr­is­sjóður sem á stærstan hlut í Sím­anum utan Arion banka, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, hefur hins vegar lýst sig fylgj­andi kaup­rétt­ar­á­ætl­un­inni. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins hefur ekki tekið afstöðu til áætl­un­ar­inn­ar.

Stjórn­endur og valdir fjár­festar fengu að kaupa



Greint var frá því seinni hluta ágúst­mán­aðar að Arion banki hefði selt fimm pró­sent hlut í Sím­anum til hóps fjár­festa sem settur hafði verið saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Sím­ans, á rúm­lega 1,3 millj­arða króna. Á meðal þeirra ­sem eru í kaup­enda­hópnum eru nokkrir lyk­il­stjórn­endur innan Síma­sam­stæð­unn­ar, erlendir fjár­festar með reynslu af fjar­skipta­geir­an­um, fyrrum for­stjóri Voda­fone á Íslandi, gam­all starfs­maður Kaup­þings og fjár­festir sem farið hefur mik­inn í því að hagn­ast á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði eftir hrun.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um söl­una og kann­aði hvað hefði valdið því að þessi hópur fékk að kaupa á þessu verði í ítar­legri frétta­skýr­ingu fyrir skemmstu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None