Lögreglustjórinn fór með ósannindi í opnuviðtali við Morgunblaðið

sbg.jpg
Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fer með ósann­indi í opin­skáu opnu­við­tali við Agn­esi Braga­dóttur blaða­mann Morg­un­blaðs­ins, sem birt­ist í dag, að því er fram kemur í skrif­legu svari Helga Magn­úsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Í umræddu við­tali er haft eftir Sig­ríði Björk: „Þeirri spurn­ingu hefur verið varpað fram hvort ég hefði ekki átt að gera lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kunn­ugt um sam­skipti mín við Gísla Frey, aðstoð­ar­mann ráð­herra, þegar hún vann að rann­sókn sinni á leka­mál­inu. Því er til að svara að sam­skipti mín við aðstoð­ar­mann­inn fóru fram eftir að hann hafði lekið upp­lýs­ingum til fjömiðla. Jafn­framt að öll sam­skipti aðstoð­ar­manna og tölvu­póst­send­ingar voru skoðuð af lög­regl­unni og allar upp­lýs­ingar um mín sam­skipti lágu þar fyr­ir.“

Sig­ríður Björk, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, hefur sjálf sagt í fjöl­miðlum að hún hafi sent Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, í tölvu­pósti þann 20. nóv­em­ber 2013, eða sama dag og fyrstu frétt­irnar birt­ust í fjöl­miðlum í hinu svo­kall­aða leka­máli sem byggðu á minn­is­blaði sem Gísli Freyr lak til fjöl­miðla og fékk síðar dóm fyr­ir. Per­sónu­vernd úrskurð­aði á dög­unum að ­Sig­ríður Björk hafi brotið lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga með því að senda Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð.

Auglýsing

Lög­regla hafði ekki vit­neskju um tölvu­póst­send­ing­una



Kjarn­inn bar ofan­greind ummæli Sig­ríðar Bjarkar undir Helga Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ara. Í skrif­legu svari hans til Kjarn­ans seg­ir: „Um­ræddur tölvu­póstur og grein­ar­gerð sem fylgdi honum og var sendur frá Sig­ríði til Gísla Frey var lög­reglu ekki kunn­ugt um. Að sjálf­sögðu var póst­hólf Sig­ríðar ekki rann­sak­að, en mér er ekki kunn­ugt um að merki um þessa póst­send­ingu hafi fund­ist í póst­hólfi Gísla Freys og var hún ekki hluti af máls­gögn­um. Ákæru­valdið fékk fyrst upp­lýs­ingar um að grein­ar­gerðin hefði verið send þegar Sig­ríður greindi frá því í fjöl­miðlum eftir að umfjöllun um síma­sam­skipti hennar við Gísla Frey komu til umræðu eftir að dómur gekk.“

Umfjöll­unin sem Helgi Magnús vísar til má rekja til yfir­lýs­ingar Sig­ríðar Bjarkar sem hún sendi fjöl­miðlum 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn í kjöl­far fréttar DV þar sem greint var frá því að hún og Gísli Freyr hefðu þrí­vegis ræðst við í síma dag­inn sem fyrstu frétt­irnar í leka­mál­inu litu dags­ins ljós.

Þá segir í áður­nefndu svari Helga Magn­úsar vara­rík­is­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarn­ans: „Lög­reglu var kunn­ugt um sím­töl milli Sig­ríðar og Gísla Freys eftir að lek­inn átti sér stað. Lágu fyrir upp­lýs­ingar í rann­sóknar gögnum um sím­tal þeirra á milli. Í fjöl­miðlum eftir að mál­inu lauk komu síðan fram upp­lýs­ingar um sím­töl þeirra á milli sem ekki var veitt athygli í rann­sókn­inni, lík­lega vegna þess að þau fóru um síma sonar Sig­ríð­ar, eins og hún hefur greint frá að hafi verið vegna þess að hennar sími var bil­að­ur.“

Heim­ilda­maður Kjarn­ans innan lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur stað­fest lýs­ingar Helga Magn­úsar á máls­at­vik­um.

Ummæli Sig­ríðar Bjarkar í áður­nefndu opnu­við­tali við Morg­un­blað­ið, um að lög­reglu hafi verið kunn­ugt um tölvu­póst­sam­skipti hennar við Gísla Frey Val­dórs­son, eiga því ekki við rök að styðj­ast.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None