Malín Brand segir að seinna fjárkúgunarmálið, sem hún og Hlín Einarsdóttir systir hennar voru kærðar fyrir í gær, hafi snúist um sátt í nauðgunarmáli, gagnvart systur hennar. Malín hafi haft milligöngu um sáttina þar sem systir hennar hafi ekki treyst sér til að eiga samskipti við manninn.
Malín sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem hún greinir frá málavöxtum frá sinni hlið. Hún segir að systir hennar hafi greint henni frá því að henni hafi verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum laugardagskvöldið 4. apríl og hún velti því fyrir sér að kæra hann. Maðurinn hafi reynt að ná sambandi við hana daginn eftir en Hlín ekki viljað tala við hann. Malín hafi því átt í samskiptum við hann, þar sem maðurinn hafi lagt áherslu á að fá Hlín til að kæra málið ekki til lögreglu.
Malín segist leggja áherslu á að hún vilji ekki stuðla að því að flekka mannorð nokkurs manns. „Ekki má sakfella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rannsökuð. Meint brot mannsins er alvarlegt, rétt eins og aðkoma mín að broti systur minnar gagnvart forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Mér þykir óskaplega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.“
Yfirlýsing Malínar í heild sinni er eftirfarandi:
Vegna fréttaflutnings fjölmiðla vil ég koma eftirfarandi á framfæri:
Málsatvik í seinna málinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum voru eftirfarandi. Að kvöldi laugardagsins 4. apríl sl. hringdi Hlín systir mín í mig í miklu uppnámi og sagði mér að sér hafi verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum. Hún velti þá fyrir sér að kæra manninn. Hann reyndi að ná sambandi við hana daginn eftir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjölfarið áttum við samskipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, samkvæmt mínum skilningi, á að fá hana til að kæra ekki.
Á þriðjudeginum bað Hlín mig að keyra sig á bráðamótttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem hún fékk aðhlynningu og skoðun. Ástand hennar að mati starfsfólks þar benti til að hún hefði orðið fyrir nauðgun. Maðurinn lagði áherslu á að mannorðs síns vegna myndi nauðgunarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki, valda sér miklum hnekki. Systir mín féllst á þessi sjónarmið og úr varð sátt með greiðslu miskabóta. Upphæð bótanna var hennar tillaga. Samskiptin fóru í gegnum mig því systir mín treysti sér ekki til að eiga þau. Eins og fram hefur komið veitti ég sáttafénu viðtöku fyrir hönd systur minnar og kom því áfram til hennar. Sáttin var handskrifuð í tveimur eintökum sem aðilar undirrituðu, annars vegar viðkomandi og hins vegar ég fyrir hönd systur minnar, þar sem hver hélt eftir sínu eintaki. Upphæðin kom þar m.a. fram en ekki var um kvittun að ræða.
Ég legg áherslu á að ég vil ekki stuðla að því að flekka mannorð nokkurs manns. Ekki má sakfella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rannsökuð. Meint brot mannsins er alvarlegt, rétt eins og aðkoma mín að broti systur minnar gagnvart forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Mér þykir óskaplega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.
Virðingarfyllst,
Malín Brand