Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sigmundsson, Birnir Sær Björnsson, Pétur Kristinn Guðmundsson og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tveimur liðum ákæru á hendur Magnúsi Guðmundssyni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýknaður af þeim sökum sem á hann voru bornar. Björk Þórarinsdóttir var einnig sýknuð í málinu. Enginn sakborningur var viðstaddur uppkvaðningu dómsins.
Hreiðari Má var ekki gerð frekari refsing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fangelsisdóm vegna Al Thani-málsins svokallaða. Sigurður Einarsson fékk eins árs hegningarauka við þann fjögurra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- málinu. Ingólfur Helgason hlaut þyngsta dóminn, fjögurra og hálfs árs fangelsi að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skilorðsbundinn dóm og Birnir Sær og Pétur Kristinn fengu báðir 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.
Magnús Guðmundsson og Björk Þórarinsdóttir voru, líkt og áður sagði, sýknuð af þeim ákærum sem á þau voru bornar auk þess sem tveimur ákæruliðum á hendur Magnúsi var vísað frá. Dómurinn í málinu er 96 blaðsíður að lengd.
Farið var fram á að refsirammi yrði fullnýttur
Í málinu var hinum ákærðu, sem eru alls níu talsins, gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hlutabréfa í Kaupþingi, frá hausti 2007 og fram að falli bankans haustið 2008, og aukið seljanleika þeirra með „kerfisbundnum“ og „stórfelldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjárhagslegs styrks bankans. Stærð og umfang málsins á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Aðalmeðferð þess tók 22 daga og yfir 50 manns voru kallaðir til sem vitni á meðan að hún stóð yfir. Fimm vikur eru síðan að aðalmeðferðinni lauk og málið lagt í dóm.
Þau níu sem voru ákærð eru Sigurður Einarsson, fyrrum starfandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána, Einar Pálmi Sigmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eigin viðskipta Kaupþings, Pétur Freyr Guðmarsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta, Birnir Sær Björnsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta, og Björk Þórarinsdóttir, sem sæti átti í lánanefnd Kaupþings.
Við aðalmeðferð málsins fór Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara sem flutti málið, fram á að refsiramminn fyrir markaðsmisnotkunarbrot yrði fullnýttur auk þess sem tekið yrði tillit til 72. greinar almennra hegningarlaga um aukna refsingu þegar héraðdómur fellir dóma yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Ingólfi Helgasyni í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Það þýðir að embætti sérstaks saksóknara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fangelsisdóma.
Verjendur hluta sakborninga í málinu skömmu fyrir dómsuppkvaðningu í dag.
Þrír sakborninga sitja þegar inni
Þrír sakborninganna í markaðsmisnotkunarmálinu voru dæmdir til þungrar refsingar í Al Thani-málinu svokallaða í febrúar. Sigurður, Hreiðar Már og Magnús voru þá allir dæmdir sekir, ásamt Ólafi Ólafssyni, sem átti tæplega tíu prósent hlut í Kaupþingi fyrir fall hans. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár. Þeir afplána nú allir dóma sína í opna fangelsinu á Kvíabryggju.
Hreiðar, Magnús og Sigurður eru einnig ákærðir í CLN-málinu en þar er þeim gefið að sök að hafa misnotað stöðu sína sem stjórnendur bankans í lánveitingum til nokkurra félaga sem voru í eigu viðskiptavina bankans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing banka, eða svokölluð Credit Linked Notes, með það að markmiði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjárveitingar til bankans á markaði.
Þriðja málið sem er fyrir dómstólum, og beinist að Kaupþingsstjórnendum, er Marple-málið svonefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra bankans, og Skúla Þorvaldssyni, fjárfesti og fyrrverandi stórs hluthafa Kaupþings. Ákært er fyrir fjárdrátt, þegar færðir voru átta milljarðar króna úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple, sem var í eigu Skúla Þorvaldssonar, án þess að heimild væri fyrir því. Aðalmeðferð þess fer fram í september næstkomandi.