Markaðsvirði Alvotech jókst um 68 milljarða króna á tveimur dögum

Í desember var tilkynnt um forstjóraskipti hjá Alvotech og að lyf félagsins væri komið í sölu í 16 Evrópulöndum og Kanada. Alvotech, sem tapaði 28 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, var svo fært á Aðalmarkaðinn í vikunni.

Róbert Wessman, verðandi forstjóri og stjórnarformaður Alvotech, og Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Róbert Wessman, verðandi forstjóri og stjórnarformaður Alvotech, og Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Auglýsing

Mark­aðsvirði Alvot­ech jókst um 68 millj­arða króna á tveimur dögum í lok lið­innar viku, eftir að hluta­bréf félags­ins voru færð af First North mark­aðnum yfir á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Í lok dags 7. des­em­ber var mark­aðsvirði Alvot­ech um 285 millj­arðar króna en við lok við­skipta á föstu­dag var það komið í 353 millj­arða króna. 

Um er að ræða næstum 24 pró­sent hækkun á mark­aðsvirði félags­ins á 48 tím­um, en það var fyrst skráð á First North mark­að­inn í sumar og hafði fallið skarpt í verði á þeim mán­uðum sem liðnir voru frá skrán­ingu. Þrátt fyrir hina miklu hækkun á síð­ustu dögum er mark­aðsvirði Alvot­ech enn undir því gengið sem var á bréfum þess þegar þau voru fyrst tekin til við­skipta á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði síð­ari hluta júní­mán­að­ar. Þar munar þó ein­ungis 3,9 pró­sentum eins og er. 

Auglýsing
Alvotech er líka skráð á markað í Banda­ríkj­unum og er eina íslenska félagið sem nokkru sinni hefur verið skráð bæði þar og hér. 

Mikið tap en vænta hagn­aðar á næsta ári

Alvot­ech er líf­tækni­fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að þróun og fram­leiðslu líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja fyrir sjúk­linga um allan heim. Alvot­ech stefnir að því að verða leið­andi fyr­ir­tæki á sviði líf­tækni­hlið­stæðu­lyfja.

Félagið setti á þessu ári á markað sam­heita­lyfið Hukyndra sem fram­leitt er í lyfja­verk­smiðju félags­ins í Vatns­­­mýr­inni. Um er að ræða fyrsta lyf Alvot­ech á mark­aði. Þann 7. des­em­ber var til­kynnt um að lyfið væri komið í sölu í 16 Evr­ópu­löndum og í Kanada.

Skömmu áður, 1. des­em­ber, var greint frá því að Mark Levick, for­stjóri félags­ins, hefði ákveðið að biðj­ast lausnar og að Róbert Wess­man, starf­andi stjórn­ar­for­maður og stofn­andi Alvot­ech, muni taka við for­stjóra­starf­inu. Róbert verður því bæði stjórn­ar­for­maður og for­stjóri. 

Alvogen tap­aði 28 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Tekjur félags­ins juk­ust hins vegar mik­ið, úr 291 millj­ónum króna á sama tíma­bili í fyrra í 8,7 millj­arða króna. Róbert Wess­mann sagði við Frétta­vakt­ina á Hring­braut í vik­unni að áætl­anir geri ráð fyrir að hagn­aður verið af rekstr­inum eftir mitt næsta ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent