Meðalfjárhæð leiðréttingarinnar er 1.350 þúsund krónur

IMG-0231-1.jpg
Auglýsing

Nú er nýlokið blaða­manna­fundi stjórn­valda í Hörpu þar sem nið­ur­staða leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu var kynnt blaða­mönnum og almenn­ingi. Þar kom fram að 91.000 ein­stak­lingar fái skulda­leið­rétt­ingu, og meðal fjár­hæð leið­rétt­ing­ar­innar verði 1.350.000 krón­ur. Með­al­tal hjóna er 1.510.000 krónur og hver ein­stak­lingur fær 1.100.000 krónur að jafn­að­i. ­Nið­ur­staða um 90% um­­sókna verður birt á morg­un en ekki er unnt að birta um 10% vegna ým­issa ástæðna er snúa að hög­um um­­sækj­enda. Til stendur að birta þær nið­ur­stöður innan skamms.

Aðgerð­unum flýtt um eitt ár



Þá kom fram á fund­inum að fjár­mögnun á heild­ar­að­gerð­un­um, það er bein nið­ur­færsla á höf­uð­stóli verð­tryggðra lána og skatt­leysi við inn­borgun sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán, hafi verið flýtt um eitt ár og henni verði að fullu lokið árið 2016. Það tryggir betri nýt­ingu fjár­muna  sem ella hefðu farið í vaxta­greiðslur til fjár­mála­stofn­ana og gerir stjórn­völdum kleift að greiða hærri fjár­hæðir inn á höf­uð­stól lána. Verða 40 millj­arðar greiddir inn á leið­rétt­ing­ar­lánin á þessu ári, 20 millj­arðar í upp­hafi næsta árs og 20 millj­arðar í byrjun árs 2016.

Verð­bólga umfram 4 pró­sent á árunum 2008 og 2009 leið­rétt



Bein­ar höf­uð­stólslækk­an­ir munu þannig kosta rík­is­sjóð um 80 millj­arða króna, en við upp­hæð­ina bæt­ast 20 millj­arðar sem rík­is­sjóður verður af í formi skatt­greiðslna vegna útgreiðslu sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­að­ar. Þá er gert ráð fyr­ir­ sjö­tíu millj­örðum króna í skatt­leysi við inn­borgun sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­að­ar, en um 30.000 ein­stak­lingar hafa sótt um það úrræði í dag.

Á blaða­manna­fund­inum kom jafn­framt fram að öll verð­bólga umfram fjögur pró­sent, á árunum 2008 til 2009, verði leið­rétt við full­nýt­ingu leið­rétt­ing­ar­inn­ar, það er nið­ur­færsla höf­uð­stóls.

Við­tökur framar vænt­ingum stjórn­valda



Þá verða leið­rétt­ing­ar­lán, það er höf­uð­stólsleið­rétt­ingin sjálf, afskrifuð að fullu á rúmu ári en ekki fjórum árum eins og upp­haf­lega var kynnt.

Í máli Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á blaða­manna­fund­inum í dag kom fram að hlut­fall umsókna frá þeim sem eigi rétt á leið­rétt­ingu væri að nálg­ast 100 pró­sent. Við­tök­urnar væru framar vænt­ingum stjórn­valda.

Auglýsing

Hægt er að horfa á mynd­band stjórn­valda um útreikn­ing og sam­þykkt leið­rétt­ingar hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None