Michael Moore farinn af landi brott eftir stífa fundi undanfarna daga

michael.morre_.jpg
Auglýsing

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn og þjóð­fé­lags­rýn­ir­inn Mich­ael Moore, sem kom hingað til lands síð­ast­lið­inn föstu­dag, er far­inn af landi brott. Eins og sést á með­fylgj­andi mynd var Moore í flug­stöð Leifs Eiríks­son­ar,en myndin var tekin fyrr í dag.

Mikil leynd hefur hvílt yfir ástæðum þess að Moore var staddur hér­lend­is, en ljóst er að um vinnu­ferð var að ræða. Upp­haf­lega héldu íslenskir fjöl­miðlar því fram að hann væri að vinna að heim­ild­ar­mynd um íslenska heil­brigð­is­kerfið en það reynd­ist ekki rétt. Á meðal þeirra sem Moore fund­aði með á meðan að á tveggja daga dvöl hans stóð voru Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur og Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­kona Pírata. Þá greindi Egg­ert Skúla­son, rit­stjóri DV, frá því í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 2 í gær að Moore hefði vakið hann með sím­tali þá um morg­un­inn og til stæði að þeir ættu fund síð­degis í gær. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans varð ekk­ert af þeim fundi.



 

Einn áhrifa­mesti maður í heimi árið 2005



Moore er einn þekkt­asti heim­ilda­mynda­gerð­ar­maður í heimi og og vakti fyrst athygli fyrir mynd­ina Roger and Me, sem fjallað um áhrif þess þegar General Motors lok­aði verk­smiðjum sínum í heima­borg Moore, Flint í Michig­an-­fylki. Hann hlaut síðan Ósk­arsverð­laun fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Bowl­ing for Col­umbine, sem fjall­aði um hræði­leg fjöldamorð tveggja skóla­pilta í bænum Col­umbine og byssu­menn­ing­una í Banda­ríkj­un­um.

https://www.youtu­be.com/watch?v=M7Is43K6lrg

Árið 2004 kom svo út myndin Fahren­heit 9/11, sem fjallar um Banda­ríkin í kjöl­far árásanna sem áttu sér stað 11. sept­em­ber 2011. Sér­stöku ljósi var beint að George W. Bush, for­seta lands­ins, og sam­bandi fjöl­skyldu hans við Osama Bin Laden, sem bar ábyrgð á árás­un­um. Myndin var gríð­ar­lega umdeild en feyki­vin­sæl og fékk meðal ann­ars æðstu verð­laun kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Cann­es, Gullpálmann. Fahren­heit 9/11 er enn þann dag í dag sú heim­ild­ar­mynd sem hefur halað inn mestar tekjur í sög­unni, en í ágúst 2012 hafði hún tekið inn meira en 200 millj­ónir dala, um 26,4 millj­arða króna. Árið 2005, þegar athyglin vegna Fahren­heit 9/11 var sem mest, var Moore á lista tíma­rits­ins Time yfir 100 áhrifa­mesta fólk í heimi.

Þekkt­ustu myndir sem Moore hefur gert síðan eru Sicko og Capital­ism: A love story. Hann hefur auk þess skrifað fjöl­margar bækur og gert þrjár sjón­varps­þátt­arað­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None