Mikil verðmæti í Landsbankanum - Hluthafalistinn í heild sinni

Stjórnvöld stefna að því að selja um 30 prósent hlut í Landsbankanum á næsta ári og reikna með því að fá 71 milljarð fyrir, samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Starfsmenn eiga um eitt prósent.

Landsbankinn
Auglýsing

Stjórn­völd vinna nú að und­ir­bún­ingi þess að selja stóran hlut í Lands­bank­anum og skrá hann á markað sam­hliða, að því er fram hefur komið í máli Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í fjár­laga­frum­varpi næsta árs, sem nú er til með­ferðar á Alþingi, kemur fram að stjórn­völd reikni með því að fá um 71 millj­arð króna fyrir um 30 pró­sent hlut í Bank­an­um. Ríkið er lang­sam­lega stærsti hlut­hafi bank­ans, með um 98 pró­sent hlut.



Mikil verð­mæti hafa byggst upp í bank­an­um, frá því hann var stofn­að­ur, á grunni inn­lendrar starf­semi hins gamla Lands­banka sem féll 7. októ­ber 2008. Eigið fé bank­ans, sem er stærsti banki lands­ins, er nú um 250 millj­arðar króna. Um 113 þús­und ein­stak­lingar eru í við­skiptum við bank­ann og meira en ell­efu þús­und fyr­ir­tæki. 



Starfs­menn Lands­bank­ans eiga sam­tals um eitt pró­sent hlut, en virði hans, sé miðað við eigið fé sem heild­ar­virði, nemur 2,5 millj­örðum króna. Þeir starfs­menn bank­ans sem eiga flesta hluti, af þeim sem komu til skipt­anna fyrir starfs­menn miðað við sam­þykkt hlut­hafa­fundar bank­ans frá 17. júlí 2013, eru Hreiðar Bjarna­son, Helgi Teitur Helga­son og Árni Þór Þor­björns­son, en þeir áttu allir 528.732 hluti í lok árs í fyrra, eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í gær

Sam­tals eiga um 1.400 starfs­menn Lands­bank­ans hlut í bank­an­um, en sjá má upp­lýs­ingar um skipt­ingu þeirra eign­ar­hluta niður á starfs­menn, miðað við stöðu mála í lok síð­asta árs, hérStarfs­menn sem fengu hluta­bréf í bank­anum gef­ins, gerðu það með skil­yrð­um, um að óheim­ilt væri að selja bréfin fyrr en eftir þrjú ár frá afhend­ingu, en hluta þeirra má selja fyrr, komi til þess að bank­inn verði skráður á mark­að, eins og stendur nú til.

Afhend­ing hluta­bréf­anna bygð­ist á samn­ingi frá 15. des­em­ber 2009 en þá gerðu Lands­bank­inn og LBI hf. , það er kröfu­hafar eða slitabú gamla Lands­bank­ans, og Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra fyrir hönd íslenska rík­is­ins, samn­ing um fjár­hags­upp­gjör milli Lands­bank­ans hf. og slita­búss­ins. Með sam­þykki rík­is­ins var Lands­bank­anum gert að koma á árang­urstengdu launa­kerfi fyrir starfs­menn Lands­bank­ans hf. og setti íslenska ríkið skil­yrði um að það næði til allra starfs­manna. Kerfið skyldi taka mið af verð­mæti til­tek­inna eigna­safna stærri fyr­ir­tækja sem lágu til grund­vallar ákvörð­unar á fjár­hæð skil­yrts skulda­bréfs sem er hluti af fjár­hags­upp­gjör­inu. Nið­ur­staða verð­mats óháðs ytri aðila var að gefa skyldi út skil­yrta skulda­bréfið miðað við hámarks­fjár­hæð þess.  

Auglýsing

Hluta­bréfin voru afhent starfs­mönnum Lands­bank­ans og Lands­bréfa, dótt­ur­fé­lagi bank­ans, sem voru fast­ráðnir þann 31. mars 2013 og þeim sem látið hafa af störfum vegna ald­urs, örorku eða verið sagt upp í hag­ræð­ing­ar­skyn, af því er fram kom á vef bank­ans. Fjöldi afhentra hluta til hvers og eins starfs­manns mið­ast við föst laun og þann tíma sem við­kom­andi hefur starfað hjá Lands­bank­anum frá 15. des­em­ber 2009 til 31. mars 2013.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None