Missa 3000 tonn í burtu, fá 588 tonn í staðinn

Dj.pivogur.jpg
Auglýsing

Fisk­vinnslu­fyr­ir­tækið Vísir hefur til­kynnt starfs­fólki sínu á Djúpa­vogi að fyr­ir­tækið muni hætta starf­semi sinni á staðnum um ára­mót. Vísir lýsti því hins vegar yfir í vor að fyr­ir­tækið ætl­aði að halda uppi vinnslu á Djúpa­vogi í allt að ár, þannig að brott­hvarf fyr­ir­tæk­is­ins frá staðnum raun­gerð­ist fyrr en vonir heima­manna stóðu til. Félagið Búlands­tind­ur, sem var stofnað af heima­mönnum á Djúpa­vogi, mun taka við fisk­vinnslu Vísis um næstu ára­mót. Vísir mun afhenda Búlandstindi fast­eignir sínar á Djúpa­vogi, sem metnar eru á fimm­tíu millj­ónir króna, án end­ur­gjalds verði þar stöðug fisk­vinnsla næstu fimm árin. Með gjörn­ingnum verður þeim þrjá­tíu starfs­mönnum sem nú starfa hjá Vísi á Djúpa­vogi tryggð áfram­hald­andi atvinna.

Tíma­setn­ingin á brott­hvarfi Vísis gæti reyn­st baga­leg fyrir Djúpa­vog, þar sem reynst getur erfitt að fá aðrar útgerðir á stað­inn þegar svo langt er liðið á yfir­stand­andi fisk­veiði­ár. ­Bú­lands­tindur hefur und­an­farið unnið að því í sam­vinnu við bæj­ar­yf­ir­völd á Djúpa­vogi.

Högg Djúpa­vogs mikið



Með brott­hvarfi Vísis frá Djúpa­vogi hverfa rúm­lega 3000 tonn af afla­heim­ildum á þessu ári, en árlega hafa verið unnin um 4000 tonn í bæn­um. Mót­væg­is­að­gerðir stjórn­valda vegna þessa hljóða upp á 400 tonna afla­mark í gegnum Byggða­stofnun og 188 tonn af hefð­bundnum byggða­kvóta, sem getur mest orð­ið 300 tonn. Af þessu má ljóst vera að högg Djúpa­vogs vegna brott­hvarfs Vísis er þungt. "Það sér hver maður að þetta er hvergi nærri nóg og það að okkur skuli ekki einu sinni úthlut­aður fullur byggða­kvóti und­ir­strikar mein­bug­ina sem eru á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu eins og það er í dag," segir Gauti Jóhann­es­son sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps í sam­tali við Kjarn­ann.

Þessa dag­ana er unnið að end­ur­skoðun á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og í því sam­bandi hafa verið viðr­aðar hug­myndir um að festa afla­heim­ildir við ákveðin atvinnu­svæði eða byggð­ar­lög. "Þær hug­myndir eru allar athygli verð­ar. Hvaða leiðir sem verða fyrir val­inu þá er brýnt að lög­gjaf­inn spýti í lóf­ana og geri þær breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sem þarf til að tryggja festu í útgerð, fisk­vinnslu og búsetu í minni bæj­ar­fé­lögum um landið sé mönnum alvara með því að halda land­inu í byggð. Ef það er ekki mark­miðið þá verða menn að hafa póli­tískan dug til að segja það," segir sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps.

Auglýsing

Vöru­flutn­inga­bílar óku 144 þús­und kíló­metra með afl­ann í burtu



Sam­kvæmt frétt Afla­frétta voru um 2.500 tonn af afla flutt með vöru­flutn­inga­bíl­u­m ­suður til Grinda­víkur í fisk­vinnslu Vísis í sept­em­ber. Hver flutn­ingatrukkur tekum um 20 tonn af afla, en vega­lengdin milli Grinda­víkur og Djúpa­vogs eru 576 kíló­metr­ar. Sam­kvæmt útreikn­ingum Afla­frétta þurftu því vöru­flutn­inga­bíl­arnir að aka 144 þús­und kíló­metra í 125 ferðum til að flytja 2.500 tonn af afla til Grinda­vík­ur.

"Djúpi­vogur hefur verið byggð­ar­lag í sókn,  íbúum hefur fjölgað und­an­farin ár, hér er hæsta hlut­fall barna á leik­skóla­aldri í land­inu, skulda­staðan er undir við­miðum sveit­ar­stjórn­ar­laga og atvinnu­líf hefur verið með ágæt­um. Heil­brigð skyn­semi segir manni að svona til­fær­ingar ættu ekki að vera í boð­i,” segir Gauti Jóhann­es­son, sveit­ar­stjóri á Djúpa­vogi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None