Mjög kostnaðarsamir kjarasamningar líklega undirritaðir í dag

14103000883_5bf97bdc66_z.jpg
Auglýsing

Allar líkur eru á að skrifað verði und­ir­ nýjan kjara­samn­ing VR, Flóa­banda­lags­ins, LÍV og Stétt­ar­fé­lags Vest­ur­lands við Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) eftir hádegi í dag. Ólafía B. Rafns­dótt­ir, for­maður VR, segir við Frétta­blaðið að samn­ing­ur­inn verði bor­inn undir stjórn VR á eftir og fáist sam­þykki sé hægt að ganga frá und­ir­rit­un. Eftir hana verða félags­menn í verka­lýðs­fé­lög­unum að greiða um samn­ing­anna atkvæði áður en hægt verður að sam­þykkja þá að fullu.

Í Morg­un­blað­inu er sagt frá því að nokkur stór mál hafi vaf­ist fyrir samn­ings­nefnd­unum á loka­metrum samn­ings­við­ræðna. Meðal þeirra mála var krafa verka­lýðs­fé­laga um sér­staka launa­hækkun fyrir fisk­vinnslu­fólk. Því máli tókst að ljúka um tíu­leytið í gær­kvöldi.

Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði við Morg­un­blaðið að kjara­samn­ing­ur­inn væri mjög kostn­að­ar­samur fyrir atvinnu­líf­ið. Vonir væru bundnar við að með samn­ingi til svo lanfs tíma tæk­ist að vinna áfram á grund­velli auk­ins kaup­máttar og áfram­hald­andi stöð­ug­leika.

Auglýsing

Lág­marks­laun verða 300 þús­und krónur árið 2018



Líkt og greint hefur verið frá er um samn­inga til loka árs 2018. Sam­kvæmt þeim eiga lág­marks­laun að hækka upp í 300 þús­und krónur í þrepum á samn­ings­tím­anum og launa­taxtar um 25 þús­und strax við sam­þykkt samn­ing­anna. Auk þess verður sett á fót svokölluð launa­þró­un­ar­trygg­ing. Hún verður upp á 7,2 pró­sent hækkun fyrir fólk með tekjur undir 300 þús­und krónur á mán­uði en pró­sentan lækkar síðan eftir hærri tekjum og verður að lág­marki þrjú pró­sent.

Laun munu koma til með að hækka jafnt og þétt til árs­ins 2018 með launa­þró­un­ar­trygg­ingu upp á 5,5 pró­sent árið 2016, taxta­hækkun upp á 4,5 pró­sent og almennri hækkun upp á þrjú pró­sent árið 2017 og loks þrjú pró­senta taxta­hækkun og tveggja pró­senta almennri hækkun árið 2018.

Stjórn­ar­and­staðan ótt­ast skatta­lækk­anir



Í Frétta­blað­inu er einnig greint frá því að stjórn­ar­and­staðan ótt­ist skatta­lækk­un­ar­til­lög­urnar sem rík­is­stjórnin ætlar að ráð­ast í sem inn­legg í kjara­samn­inga. Þær snú­ast um að afnema milli­skatt­þrepið þannig að ein­ungis tvö skatt­þrep verði í land­inu. Skatt­lagn­ing í efra þrepi mun hefj­ast við 700 þús­und króna mán­að­ar­laun og kostn­aður rík­is­sjóðs er talin verða á bil­inu 15 til 17 millj­arðar króna þegar breyt­ingin er komin að fullu til fram­kvæmda í árs­lok 2017. For­ystu­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna segja að slík aðgerð feli í sér að skatt­kerfið nýt­ist ekki eins vel til tekju­jöfn­un­ar, en flokk­arnir hafa ekki fengið kynn­ingu á til­lög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None