Mun færri börn skráð í Þjóðkirkjuna við fæðingu

9555631404_e663c5b735_z.jpg
Auglýsing

Innan við 60 pró­sent þeirra barna sem fædd­ust í fyrra voru skráð í Þjóð­kirkj­una við fæð­ingu. Hlut­fallið hefur lækkað veru­lega frá árinu 2005, þegar það var rúm­lega 80 pró­sent. Á sama tíma­bili hefur börnum sem eru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­að­ild fjölgað mik­ið, eða úr tæpum 6 pró­sentum barna sem fædd­ust árið 2005 í rúm­lega 26 pró­sent barna sem fædd­ust árið 2014.

Þetta er hægt að sjá út úr tölum sem birt­ust í svari Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­ríðar Ingi­bjargar Inga­dótt­ur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um skrán­ingu barna í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Auglýsing


45.560 lif­andi fædd börn komu í heim­inn á Íslandi á árunum 2005 til 2014. 1.716 börn voru skráð utan trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga og 4.774 börn voru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild. Eftir að ný lög tóku gildi í byrjun árs 2013 eru börn skráð með stöð­una „ótil­greind trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild“ ef for­eldrar þeirra eru í hjú­skap eða sam­búð en ekki í sama trú­fé­lagi. For­eldrar þurfa þá að taka sam­eig­in­lega ákvörðun um trú­fé­lag en fram að því er barnið skráð með ótil­greinda stöðu.

Þá er sam­kvæmt lög­unum eftir breyt­ingu hægt að biðja um að börn fái þessa skrán­ingu, auk þess sem íslensk börn í útlöndum eru nú skráð á þennan hátt. Ann­ars gildir enn að börn eru skráð í trú­fé­lög eftir trú­fé­lagi þess for­eldris sem fer með for­sjá, eða utan trú­fé­lags ef for­eldrið er utan trú­fé­lags. Þessi breyt­ing hefur haft mikið um skrán­ing­una að segja, en milli áranna 2012 og 2013 fór hlut­fall barna sem ekki eru í til­greindu trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lagi úr níu pró­sentum í rúm­lega 20 pró­sent.

Á tíma­bil­inu sem spurt var um, 2005 til 2014, voru 2.113 börn skráð í Kaþ­ólsku kirkj­una og 1.272 í Frí­kirkj­una í Reykja­vík. Færri börn voru skráð í önnur trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Einnig var spurt að því hversu mörg börn voru skráð í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög innan árs frá fæð­ingu á þessu sama tíma­bili. Í svar­inu kemur fram að breyt­ingar hafi verið gerðar á trú­fé­laga­skrán­ingu 1.732 barna. Flest þess­ara barna voru skráð í Kaþ­ólsku kirkj­una, rúm­lega 22 pró­sent eða 385 börn. 374 börn voru skráð í Frí­kirkj­una í Reykja­vík, eða 21,5 pró­sent, og 361 barn var skráð í Þjóð­kirkj­una, eða 20,8 pró­sent. 175 börn voru skráð utan trú­fé­laga og 125 með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild.

Sjá má svarið og töl­urnar hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None