Mun fleiri hlynntir ESB-aðild heldur en mótfallnir

Tæpur helmingur landsmanna er nú hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningurinn við aðild hefur aukist um rúman helming á síðustu mánuðum, ef miðað er við nýlega könnun MMR.

Stuðningurinn við aðild að Evrópusambandinu hefur stóraukist á síðustu mánuðum.
Stuðningurinn við aðild að Evrópusambandinu hefur stóraukist á síðustu mánuðum.
Auglýsing

Alls styðja 47 pró­sent lands­manna aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, en 33 pró­sent þeirra eru mót­fallnir henni. Þetta kemur fram í nýbirtum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Þetta er við­snún­ingur frá fyrri mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins á stuðn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið árin 2010 og 2014, en þá var um þriðj­ungur þjóð­ar­innar með aðild á meðan helm­ingur hennar var á móti henni.

Mynd: Úr Þjóðarpúlsi Gallup.

Stuðn­ing­ur­inn er líka mun meiri en mæld­ist í reglu­legum mæl­ingum MMR á Evr­ópu­sam­bands­að­ild í des­em­ber í fyrra, en þar voru 31 pró­sent svar­enda hlynnt aðild á meðan 44 pró­sent þeirra voru and­vígir aðild Íslands að ESB. MMR gerði mán­að­ar­legar skoð­ana­kann­anir á við­horfum til Evr­ópu­sam­bands­ins frá 2011 til 2021, en sam­kvæmt þeim hafa aldrei meira en 40 pró­sent við­mæl­enda verið hlynnt aðild.

Auglýsing

Gallup kann­aði einnig við­horf til aðildar Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), en sam­kvæmt þjóð­ar­púls­inum eru 75 pró­sent lands­manna hlynnt henni, á meðan níu pró­sent þeirra eru and­víg. Fjöldi þeirra sem er and­vígur NATO-að­ild er nú tölu­vert minni en árin 2003 og 2001, en þá vildu 13-14 pró­sent við­mæl­enda Gallup ekki að Ísland væri í NATO-­sam­starf­inu.

Alls tóku 908 manns þátt í könnun Gallup af 1.780 manna úrtaki. Við­mæl­endur voru allir valdir af handa­hófi úr við­horfa­hópi fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent