Mun taka 15 til 20 ár að flytja Fiskistofu - átti að vera lokið í árslok 2016

15465072021_38a7190fca_z.jpg
Auglýsing

Það mun taka 15 til 20 ár að ljúka flutn­ingi Fiski­stofu til Akur­eyrar í kjöl­far ákvörð­unar Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um að falla frá því að starfs­menn hennar flyttu með stofn­un­inni. Þess í stað mun ein­ungis for­stjóri Fiski­stofu, Eyþór Björns­son, flytj­ast norður og önnur störf fær­ast síðan þangað í gegnum eðli­lega starfs­manna­veltu. Þ.e. þegar ein­hver í höf­uð­stöðv­unum í Hafn­ar­firði hættir þá verður ráðið í hans stað á Akur­eyri.

Eyþór segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að þetta þýði í raun að þeir sem eru í starfi í dag geti verið eins lengi og hentar Fiski­stofu að þeir séu í starfi. Eðli­leg starfs­manna­velta á Fiski­stofu hafi verið sex til tíu pró­sent á ári og miðað við það muni taka 15 til 20 ár að flytja stofn­un­ina. Þangað til verða höf­uð­st­vöðvarnar klofnar á tveimur stöð­um, í Hafn­ar­firði og á Akur­eyri.

Flutn­ingum átti að ljúka í árs­lok 2016



Sig­urður Ingi til­kynnti um flutn­ing Fiski­stofu seint í júní á síð­asta ári. Flytja átti höfu­stöðvar stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar þann 1. júlí 2015 og flutn­ingnum átti að ljúka að fullu í árs­lok 2016.

Ákvörð­unin var harð­lega gagn­rýnd, ekki síst af starfs­mönnum stofn­un­ar­inn­ar. Í til­kynn­ingu sem starfs­fólkið sendi frá sér í lok sept­em­ber síð­ast­lið­inn segir að flutn­ing­ur­inn sé ólög­legur og engin fag­leg sjón­ar­mið búi að baki. Þá hefði eng­inn starfs­maður Fiski­stofu lýst yfir vilja til þess að flytja með stofn­un­inni til Akur­eyr­ar, að for­stjór­anum frá­töld­um. Mál­flutn­ingur stjórn­mála­manna, þar sem lands­byggð og höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé att sam­an, hafi verið óboð­legur og óþol­andi þegar um póli­tíska hreppa­flutn­inga sé að ræða, þar sem flytja á sér­fræði­menntað fólk, nauð­ugt vilj­ugt, milli lands­hluta án mál­efna­legra skýr­inga.

Auglýsing

Í athuga­semdum starfs­manna Fiski­stofu til umboðs­manns Alþingis vegna flutn­ingar stofn­un­ar­inn­ar, sem birtar voru í jan­úar 2015, segir að ákvörð­un ­Sig­urðar Inga um flutn­ing Fiski­stofu hafði ekki laga­stoð og var því ólög­mæt. Áform um að leita heim­ildar þings­ins nú í vetur breytir engu þar um. Tal ráð­herr­ans um að ekki hafi verið ákveðið að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu til Akur­eyrar er einnig rangt og hann reynir að afvega­leiða eft­ir­lits­stofnun Alþingis með því.

Þar voru líka gerðar miklar athuga­semdir við svör Sig­urðar Inga til umboðs­manns fyrir jól vegna máls­ins. Ráð­herra talar þar um áform um að flytja Fiski­stofu, en ekki ákvörð­un. Þetta er rangt, og ámæl­is­vert, að mati starfs­manna Fiski­stofu. Starfs­menn­irnir vitna í hljóð­skrár af fundum með ráð­herr­anum sem og ummæli hans í fjöl­miðlum til að stuðn­ings þessu. „Ráð­herra getur ekki bent á laga­heim­ildir fyrir ákvörðun sinni, sem eðli­legt er, þar sem þær eðli máls­ins sam­kvæmt finn­ast ekki.“

Fellur frá flutn­ingi



Sig­urður Ingi ákvað í þess­ari viku að falla frá því að starfs­menn Fiski­stofu, að und­an­skildum Fiski­stofu­stjóra, þurfi að flytja til Akur­eyr­ar. Þetta var til­kynnt með bréfi sem hann af­henti Fiski­stofu­stjóra og full­trúa starfs­manna á fundi síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Starfs­menn telja nið­ur­stöð­una fulln­að­ar­sig­ur.

Bréf Sig­urðar Inga er skrifað í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis þar sem fjallað var um fyr­ir­hug­aða flutn­inga Fiski­stofu. Umboðs­maður Alþingis gerði athuga­semdir við und­ir­bún­ing áfor­manna og sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við stofn­un­ina og starfs­fólk henn­ar. Í bréf­inu kemur fram að ráðu­neytið hafi kynnt sér álitið og muni leit­ast við að fylgja þeim leið­bein­ingum sem umboðs­maður veitir með áliti sínu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None