Gamalt netfang Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra er á meðal þeirra netfanga sem tengjast gagnaleka af síðunni Ashley Madison. Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna, gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og Bjarni deildi innleggi Þóru á aðdáendasíðu sinni nú í hádeginu.
Þóra Margrét segir að þeim hjónum hafi borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í milli að gamalt netfang Bjarna tengist gögnunum. Netfangið sem um ræðir er bjarniben@n1.is. Ashley Madison er vefsíða sem er ætluð fólki sem vill halda framhjá og komast í kynni við annað fólk í sömu erindagjörðum. Gögnum um mikinn fjölda fólks var lekið á netið fyrr í mánuðinum.
Þóra segir að þau hjónin hafi heyrt um þennan „umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í framhaldi af því skoðuðum við vefinn fyrir forvitnissakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá netfang, erlent póstnúmer og fleira sem við gerðum í algjörum hálfkæringi og af léttúð,“ skrifar Þóra.
Hún segir þau hjónin aldrei síðan hafa farið inn á vefinn og ekki hafi verið greitt fyrir skráningu eða aðgang að honum. „Þessi heimsókn hefur ekki leitt til samskipta við nokkurn mann, hvað þá trúnaðarbrots af neinum toga. Ekki er allt sem sýnist á netinu,“ skrifar hún.
Kæru vinir. Ekki er öll vitleysan eins. Okkur hjónum hafa borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í...Posted by Þóra Margrét Baldvinsdóttir on Monday, August 31, 2015