Árin 2011 til 2013 kostaði mjólk á bændaverði neytendur og íslenska ríkið 15,5 milljarða króna á ári að jafnaði, en innflutt mjólk hefði kostað tæplega 7,5 milljarða króna, með flutningskostnaði. Stuðningur ríkis og neytenda við mjólkurframleiðslu var því með öðrum orðum átta milljarðar króna á ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um mjólkurvöruframleiðslu á Íslandi. Skýrslan var gerð opinber í dag.
Skýrslan er unnin fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Í lokakafla skýrslunnar eru gerðar tillögur um breytingar á opinberum stuðningi við mjólkurframleiðslu. Lagt er til að tollar verði lækkaðir, svo að framleiðsla grannlandanna verði samkeppnisfær við íslenskar mjólkurafurðir hér á landi. Í framhaldi af því má leggja af opinbert heildsöluverð á mjólkurvörum. "Lagt er til að undanþágur mjólkurvinnslufyrirtækja frá samkeppnislögum verði felldar úr gildi. Í stað greiðslna úr ríkissjóði fyrir mjólkurframleiðslu innan greiðslumarks (framleiðslukvóta) komi annað hvort styrkir sem miðaðir verði við fjölda nautgripa og heyfeng, að ákveðnu marki, eða hreinir búsetustyrkir. Lagt er til að greiðslumark (framleiðslukvóti) verði aflagt."
Lágmarksverð til bænda hefur hækkað
Í skýrslunni segir einnig að lágmarksverð til bænda hafi hækkað miðað við almennt neysluverð síðan 2003. Heildsöluverð mjólkurvara hefur á sama tíma lækkað miðað við almennt neysluverð og smásöluverð mjólkurvara var lægra árið 2013 en árið 2003 miðað við verð á almennum neysluvörum. "Þegar þróun verðs á einstökum mjólkurafurðum er borin saman við verð á einstökum tegundum annarrar matvöru kemur í ljós að um 70 prósent af öðrum matvörum, sem til skoðunar eru, hækkuðu meira í verði en mjólkurafurðir," segir í skýrslunni.
Á árunum 1986 til 1988 var opinber stuðningur við íslenska bændur fimm prósent af landsframleiðslu, að mati OECD, en hlutfallið var liðlega eitt prósent árið 2013. Árin 1986 til 1988 var íslensk mjólk á bændaverði níu sinnum dýrari en innflutt mjólk hefði verið, að mati OECD, en 2011-2013 var hún að jafnaði um 30 prósent dýrari.