Íslenska stórhljómsveitin Of Monsters and Men gaf í dag út nýtt lag, sem heitir Crystals, og er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar.Aðdáendur hljómsveitarinnar hafa beðið nýs efnis frá henni með eftirvæntingu.
Myndband við lagið, í framleiðslu íslenska framleiðslufyrirtækisins Tjarnargötunnar, er komið á Youtube, og má sjá hér að neðan. Sigurður Sigurjónsson leikari er í aðalhlutverki myndbandsins.