Ólafur Hannibalsson blaðamaður er látinn. Hann andaðist að heimili sínu þriðjudaginn 30. júní 2015, 79 ára að aldri.
Ólafur fæddist á Ísafirði 6. nóvember 1935, sonur Sólveigar Ólafsdóttur og Hannibals Valdimarssonar. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1956 og stundaði nám við háskólann í Delaware í Bandaríkjunum og við hagfræðiháskólann í Prag í Tékklandi á árunum 1957 til 1962. Ólafur starfaði hjá Loftleiðum í New York, var ritstjóri Frjálsrar þjóðar 1964-1970, með árshléi 1968 þegar hann vann að hafrannsóknum. Hann var skrifstofustjóri ASÍ 1971-1977. Ólafur var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi 1995-1999.
Um tíu ára skeið til ársins 1987 var Ólafur bóndi í Selárdal og síðan blaðamaður, rithöfundur og ritstjóri. Ásamt Jóni Hjaltasyni og Hjalta Einarssyni skrifaði hann 50 ára sögu Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna sem út kom 1997. Hann þýddi Sögu þorsksins eftir Mark Kurlansky, og skráði ásamt konu sinni Sólarmegin, endurminningar Herdísar Egilsdóttur kennara. Síðustu árin vann Ólafur að Djúpmannatali, skrá ábúenda við Ísafjarðardjúp frá 1801 og niðja þeirra, sem nú er búið til prentunar.
Í tilkynningu frá aðstandendum segir að Ólafur hafi látið sig þjóðmál miklu varða. Hann hafi verið annálaður penni, ritað ótal greinar og haldið útvarpserindi um innlend og erlend málefni. Hann tók virkan þátt í aðgerðum, svo sem mótmælum Þjóðarhreyfingarinnar gegn fjölmiðlalögunum 2004, og gegn stuðningi Íslands við innrás Bandaríkjahers í Írak, m.a. með birtingu heilsíðuauglýsingar í New York Times í ársbyrjun 2005.
Kona Ólafs er Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur. Dætur þeirra eru Ásdís og Marta. Börn Ólafs af fyrra hjónabandi eru Hugi, Sólveig og Kristín.
Ritstjórn Kjarnans sendir fjölskyldu Ólafs samúðarkveðjur.