Ólafur Ragnar: Hlutverk þjóðhöfðingja að greiða götur fyrirtækja erlendis

15247571896-249601b780-z.jpg
Auglýsing

„Það er óhjá­kvæmi­legt, á þess­ari öld og reyndar líka á þeirri síðustu, að þjóð­höfð­ingjar taki þátt í að efla vel­ferð og hag­sæld og fram­farir sinnar þjóð­ar,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms­son í við­tali hjá Sölva Tryggva­syni á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í gær. Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins var „ís­lensk nýsköpun í útrás“ og spurði Sölvi for­set­ann hvort hann sé var­kár­ari en fyrir hrun við að greiða götur íslenskra fyr­ir­tækja erlendis eða hvort hann líti á það sem mik­il­vægt hlut­verk for­seta­emb­ætt­is­ins. „Við sjáum líka þjóð­höfð­ingja á Norð­ur­löndum og ann­ars staðar gera þetta í ríkum mæli. Mar­grét Dana­drottn­ing fer í heim­sókn til dæmis til Asíu, það eru margir tugir aðila úr dönsku við­skipta­lífi sem fylgja henni. Þegar Svía­kon­ungur fer í heim­sókn til Suð­ur­-Am­er­íku eru öll stærstu fyr­ir­tæki Sví­þjóðar með í för,“ sagði for­set­inn.

Ólafur Ragnar sagði að menn átti sig á að sam­keppni í ver­öld­inni sé ekki bara milli fyr­ir­tækja heldur líka milli þjóða. „Þjóð­höfð­ingar geta opnað dyr og greitt leið­ir. Sá þjóð­höfð­ingi sem sæti og segð­ist bara sinna ákveðnum svið­um, menn þyrftu helst að vera menn­ing­ar­for­kálfar til þess að ég telji mér sóma til að tala við þá, ég er ekki til­búin að hjálpa ungu fólki sem er að reyna að feta nýjar brautir á vett­vangi við­skipta, og þeim mun kannski mis­takast og ég verð þá gagn­rýndur fyrir það, það væri að mínum dómi allt of þröng sýn á for­seta­emb­ætt­ið,“ sagði for­set­inn.

Auglýsing


Spurður hvort hann myndi gera eitt­hvað örðu­vísi í dag en áður, sagð­ist Ólafur Ragnar ekki geta svarað því og að hann hafi ekki farið yfir það. „Auð­vitað var þessi reynsla mik­il­væg bæði fyrir mig og aðra. Maður horfir þá kannski gagn­rýnni augum á ýmis­legt sem menn eru að gylla.“

Gagn­rýndur í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni

Í 8. hefti rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 er kafli um hlut for­seta Íslands í aðdrag­anda hruns­ins. Í skýrsl­unni er Ólafur Ragnar gagn­rýndur fyrir sinn þátt. Sagt er að for­seta­emb­ættið hafi óspart verið nýtt í þágu ein­stakra aðila til að koma á tengslum víða um lönd. „Þegar horft er til baka yfir þá atburði sem leiddu til hruns í íslensku efna­hags­lífi vekur þáttur for­seta Íslands sér­staka athygli. Þótt stjórn­kerfið í heild beri með marg­vís­legum hætti ábyrgð á því sem gerð­ist verður ekki hjá því kom­ist að skoða emb­ætti for­seta Íslands sér­stak­lega, svo hart gekk for­set­inn fram í þjón­ustu sinni við útrás­ina og þá ein­stak­linga sem þar voru fremstir í flokki. For­set­inn kom ekki að stjórn­valds­á­kvörð­unum en hann ber ásamt fleirum sið­ferði­lega ábyrgð á því leik­riti sem leikið var í kringum for­ingja útrás­ar­innar og fyr­ir­tæki þeirra. Þau reynd­ust ekki vera í neinu frekar en keis­ar­inn í sögu H.C. And­er­sen,“ segir í 8. hefti skýrsl­unn­ar. Lær­dómar sem dregnir eru fram í álykt­un­ar­kafla í skýrsl­unni eru eft­ir­tald­ir:



• „Skýra þarf hlut­verk for­seta Íslands mun betur í stjórn­ar­skránni.



• Setja þarf reglur um hlut­verk og verk­efni for­seta Íslands og sam­skipti hans við önnur ríki.



• Æski­legt væri að for­seta­emb­ættið setti sér siða­reglur þar sem meðal ann­ars yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðli­legt að hann veiti við­skipta­líf­inu stuðn­ing.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None