Ólga innan stjórnar RÚV vegna uppsagna á Rás 1 - Stjórnarmenn fá ekki aukafund

R--v-2.jpg
Auglýsing

Ólga er innan stjórnar RÚV vegna upp­sagna tveggja starfs­manna Rásar 1 snemma í júlí og því sem hluti stjórn­ar­manna vill meina að sé stefnu­breyt­ing hjá Rás 1. Þrír stjórn­ar­menn, Björg Eva Erlends­dótt­ir, Mörður Árna­son og Frið­rik Rafns­son, hafa farið fram á skýr­ingar á upp­sögn­un­um. Þre­menn­ing­arn­ir, sem sitja fyrir hönd stjórn­ar­and­stöðu­flokka í stjórn RÚV, hafa einnig farið fram á skýr­ingar á því sem þau telja að sé stefnu­breyt­ing á starf­semi Rásar 1. Þau telja að slíka breyt­ingu verði að ræða innan stjórn­ar. Vegna þessa hafa þau Björg Eva og Mörður kraf­ist þess að auka­fundur verði boð­aður í stjórn RÚV. Við þeim kröfum hefur ekki verið orð­ið.

Níu sitja í stjórn RÚV. Sex þeirra sitja í umboði stjórn­ar­flokk­anna tveggja en Vinstri græn­ir, Sam­fylk­ing og Björt fram­tíð eiga einn full­trúa hver.

Vild­u láta draga upp­sagn­irnar til baka



Síð­asti stjórn­ar­fundur RÚV var hald­inn 6. júlí 2015. Nokkrum dögum síðar var þeim Hönnu G. Sig­urð­ar­dóttur og Sig­ríði Steph­en­sen, sem starfað höfðu hjá Rás 1 um ára­bil, sagt upp störf­um. ­Upp­sagn­irnar vöktu hörð við­brögð hjá minni­hluta stjórnar RÚV. Björg Eva sagði við Stund­ina að þær væru aug­ljóst brot á jafn­rétt­is- og mannauðs­stefnu RÚV og því væri um stefnu­breyt­ingu að ræða. Slíka þyrfti að ræða innan stjórnar Rúv.

Þröstur Helga­son, dag­skrár­stjóri Rásar 1, hafn­aði ávirð­ingum um að upp­sagnir þeirra væru liður í því að gjör­breyta starf­semi Rásar 1 í sam­tali við Eyj­una skömmu síðar. Hann sagði að breyt­ing­arnar mið­uðu að því að styrkja ákveðna efn­is­þætti, bæði í frétta­tengdri umfjöllun og menn­ing­ar­um­fjöll­un. Einnig sé alltaf nokkur hreyf­ing á starfs­fólki hjá Rás 1 og að slík hreyf­ing væri nauð­syn­leg á lif­andi miðli.

Auglýsing

Björg Eva ­segir í sam­tali við Kjarn­ann að í kjöl­far upp­sagn­anna hafi verið farið fram á auka­fund í stjórn RÚV og þess kraf­ist að upp­sagn­irnar yrðu dregnar til baka þar til að sá fundur hefði farið fram, en sam­kvæmt dag­skrá á næsti stjórn­ar­fundur ekki að vera fyrr en 26. ágúst. Fund­inn vildu full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í stjórn RÚV fá til að óska skýr­inga á upp­sögnum dag­skrár­gerð­ar­mann­anna tveggja og því sem þeir telja að sé stefnu­breyt­ing á starf­semi Rásar 1. Þessar beiðnir hafa verið sendar á stjórn, Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóra og fram­kvæmda­stjórn RÚV en það hafi ekki skilað neinum árangri.

Í fyrra­dag boð­aði Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, stjórn­ar­for­maður RÚV, að næsta reglu­lega fundi verði flýtt um viku og að hann fari fram 19. ágúst. Björg Eva kemst ekki á þann fund og segir það ósvífið að hafna beiðni sinni um auka­fund með þeim rökum að efnið sem vilji var til að ræða væri ekki á verk­sviði stjórnar en flýta síðan reglu­legum fundi með skömmum fyr­ir­vara. „Það verður til þess að fund­ar­beið­and­inn, ég, fæ hvorki fund­inn sem ég bað um og á rétt á sam­kvæmt lögum né kemst á reglu­legan fund,“ segir Björg Eva.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None