Nexpo verðlaunahátíðin verður haldin í fimmta skipti þann 27. mars, en tæknivefurinn Simon hefur tekið við hátíðinni af fyrirtækinu Silent. Simon mun annast framkvæmd hátíðarinnar í samstarfi við Kjarnann og Klak Innovit.
Nú gefst almenningi kostur á því að tilnefna verðlaunahafa í öllum átta flokkunum sem verðlaun verða veitt í. Það er hægt að gera með því að smella hér. Lokað verður fyrir tilnefningar þann 16. mars. Tilnefningar verða svo lagðar fyrir dómnefnd sem velur þær verðugustu úr.Verðlaun verða veitt í átta flokkum, þar af tveimur nýjum flokkum: sprotafyrirtæki ársins verður valið og besti markaðsárangur sprotafyrirtækis sömuleiðis. Aðrir verðlaunaflokkar eru vefhetjan, app ársins, vefur, herferð og stafrænt markaðsstarf ársins. Þá verður besta óhefðbundna auglýsing ársins verðlaunuð.
Þegar dómnefnd hefur valið úr endanlegar tilnefningar verður opnað fyrir kosningu til verðlaunanna hér á vef Kjarnans þann 19. mars. Sigurvegarar verða valdir í netkosningu og með atkvæði dómnefndar, sem vegur til helmings á móti netkosningunni.
Verðlaunaafhendingin fer svo fram í Bíó Paradís föstudaginn 27. mars.