Prins Póló fjölskyldan undirbýr jólahátíðina í kafaldsbyl í Berufirði

Enginn---t.jpg
Auglýsing

Mikið fár­viðri ­geysar nú á Aust­fjörð­um. Af því ­til­efn­i hafði Kjarn­inn sam­band við tón­list­ar­kon­una Berg­lindi Häsler, sem býr ásamt eig­in­manni sínum Svav­ari Pétri Eysteins­syni, betur þekktur sem Prins Póló, og þremur börnum í hálf­gerðri ein­angrun á sveita­bænum Karls­stöðum í Berufirði.

„Það byrj­aði að hvessa snemma í morgun og ég vakn­aði við það að svefn­her­berg­is­hurðin skellt­ist hressi­lega, sem mér þótti skrýtið enda áttu allir gluggar að vera lok­að­ir,“ segir Berg­lind í sam­tali við Kjarn­ann. „Þegar ég kom inn í eld­hús þá stóð glugg­inn hrein­lega út og upp í loft. Þá var ekk­ert annað að gera en að bíða með kaffið og klæða sig í kraft­gall­ann, vopnuð hamri og nagla. Ég hef svo þurft að fara tvisvar út til að gera að glugg­anum síð­an, en það er ágætt að þurfa að fara út öðru hvoru til að athuga hvort allt sé enn á sínum stað.“

Húsfrúin á Karlsstöðum gerir að glugganum sem fauk upp í nótt. Hús­frúin á Karls­stöðum gerir að glugg­anum sem fauk upp í nótt.

Auglýsing

Berg­lind segir veður á svæð­inu hafa versnað mikið upp úr hádegi. Þá hafi þak­plötur fokið af hlöðu á bæ í nágrenn­inu. „Miðað við spár lítur þetta þannig út að ung­ling­ur­inn verður áfram veð­ur­tepptur á Djúpa­vogi til morg­uns, að skóla­bíll­inn sem kemur vana­lega klukkan sjö á morgn­ana, komi ekki neitt og að seinkun verði á Prins­inum sem átti ann­ars að koma í fyrra­málið frá Reykja­vík. En svona er nú lífið í sveit­inni, það er við öllu að búast. En það er þá ekk­ert annað að gera en að huga að jól­um, hita kakó og baka svo­lít­ið. Ég á það nú til að gera mjög lítið úr svona lög­uðu. Hef ósjaldan full­yrt að hér snjói ALDREI. Ég laug. Sor­rí,“ segir Berg­lind í gam­an­sömum tón, og bætir við að ann­ars hafi vet­ur­inn verið mjög snjó­léttur á svæð­inu til þessa.

Standa í ströngu í Berufirði



Tón­list­ar­hjón­in, sem jafn­framt fram­leiða Buls­ur, fluttu á sveita­bæ­inn Karls­staði í Berufirði síð­ast­liðið vor ásamt þremur börn­um, sem eru eins árs, fjög­urra ára og fimmt­án. „Við erum að gera upp tæp­lega þús­und fer­metra af fast­eign­um. Við erum meðal ann­ars að útbúa hér fram­leiðslu­eld­hús og að breyta gömlum bæ í gisti­heim­ili. Þá á að rækta hér græn­meti á ein­hverjum hekt­urum og svo erum við með 60 kind­ur. Og svo má ekki gleyma tón­list­inni enda bónd­inn vin­sæll um þessar mundir og er einmitt staddur í borg­inni þessa helgi við tón­leika­hald. Ég spila í hljóm­sveit­inni Prins Póló og höldum við öll fjöl­skyldan suður í lok vik­unnar því við ætlum að halda tón­leika í Iðnó 19. des­em­ber. Vonum að það verði bara logn og nota­leg­heit þann dag­inn. Og svo ætlum við að flýta okkur heim aftur og halda okkar fyrstu jól í sveit­inn­i,“ segir Berg­lind.

Húsbóndinn og sjálfur Prins Póló gerir klárt fyrir jólin. Hús­bónd­inn og sjálfur Prins Póló gerir klárt fyrir jól­in.

Hús­frúin á Karls­stöðum seg­ir að fyrsta sumar fjöl­skyld­unnar í Berufirð­i, hafi verið mjög eft­ir­minni­legt. „Síð­asta sumar var alveg hreint dásam­legt. Hingað komu vinir og vanda­menn í stórum stíl, og sumir meira að segja alla leið frá Kana­da, og allir lögðu hönd á plóg. Vet­ur­inn hefur alls ekki verið síðri. Í vetur höfum fengið til okkar sjálf­boða­liða frá ýmsum heims­horn­um, erum líka með frá­bæra smiði hérna úr sveit­inni og góða nágranna svo það er ríf­andi gangur í þessu. Vinur okk­ar, tón­list­ar­mað­ur­inn Jónas Sig­urðs­son var líka hjá okkur hérna í byrjun des­em­ber og létti okkur vinn­una og lund­ina. Gisti­heim­ilið verður opnað í sumar og pant­anir eru strax farnar að ber­ast. Það er ótrú­lega gaman hvað fólk er áhuga­samt um þetta ævin­týri. Það hvetur okkur áfram.“

En hvernig líður fjöl­skyldu úr Reykja­vík í skamm­deg­inu og ein­ver­unni í Berufirði? „Margir spyrja hvernig vet­ur­inn fari með okk­ur. Það er auð­vitað fjandi dimmt. En það er svo skrýtið að ég hef sjaldan fundið fyrir jafn litlu skamm­deg­is­þung­lyndi og núna. Ég skil það ekki alveg, kannski er það nálægðin við nátt­úr­una. Ég virð­ist fá orku ein­hvers­staðar ann­ars­staðar frá.“

Kl. 11:25. Sólarupprás. Kl. 11:25. Sól­ar­upp­rás.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None