Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton V. Vasiliev ræddust við á óformlegum fundi í dag. Farið var yfir stöðuna sem uppi er í samskiptum ríkjanna, vegna ákvörðunar Rússa um að setja innflutningsbann á íslenska matvöru.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Fram kemur að ráðherra hafi á fundinum bent á það að bann Rússa væri mun þyngra högg fyrir íslenskt efnahagslíf, en annarra þjóða. Helgist það einkum af því að mikið af sjávarafurðum hafi verið flutt út til Rússlands á undanförnum árum.
„Sendiherrann sagði að ákvörðunin frá því í morgun, beindist ekki sérstaklega gegn Íslandi, heldur væru Rússar að svara í sömu mynt fyrir þær aðgerðir sem beitt hefði verið gegn þeim. Aðgerðir sem Rússar telji ólöglegar. Sendiherrann sagðist ekki hafa upplýsingar um hversu víðtækt innflutningsbannið væri, en það væri tímabundið og nauðsynlegt að vinna að sameiginlegri lausn,“ segir í tilkynningunni.
Ekki hægt að markaðssetja sjávarafurðir
Utanríkisráðuneytið sendi samtímis frá sér tilkynningu í dag þar sem íslensk stjórnvöld eru sögð harma ákvörðun rússneskra yfirvalda að bæta Íslandi á lista yfir lönd sem sæta innflutningsbanni til Rússlands. Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins liggur fyrir að íslenskar vörur verði ekki tollafgreiddar og hætta sé á að vörum verði fargað á landamærunum.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við höfum leitað allra leita til að útskýra afstöðu okkar fyrir rússneskum stjórnvöldum og þá hagsmuni sem undir eru,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í tilkynningunni.
Ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyrirtækjum verður ekki lengur unnt að markaðssetja sjávarafurðir í Rússlandi auk þess sem bannið tekur til landbúnaðarvara að frátöldu lambakjöti, ærkjöti, hrossakjöti og niðursoðnu fiskmeti í dósum.
Ísland mun halda áfram því samtali sem ráðherrar og embættismenn hafa átt við Rússa á síðustu vikum til að draga úr áhrifum þessarar ákvörðunar.
Ísland, Albanía, Liechtenstein, Svartfjallaland og Úkraína bætast nú í hóp þar sem fyrir eru Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Þýskaland, Bretland, Írland, Frakkland, Spánn, Portúgal, Ítalía, Holland, Belgía, Lúxemborg, Malta, Grikkland, Kýpur, Austurríki, Pólland, Ungverjaland, Eistland, Lettland, Litháen,Tékkland, Slóvakía,Slóvenía, Rúmenía, Búlgaría, Króatía, Bandaríkin, Noregur, Kanada og Ástralía.
*Athugasemd ritstjórnar: Í upphaflegri frétt sagði í fyrirsögn að Rússar kaupi engan fisk á meðan innflutningsbann er í gildi. Það er ekki nákvæmt, því í tilkynningunni frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að fiskmeti í dósum verður undanþegið banninu.