Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur úrskurðað að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu beru að afhenda Félagi atvinnurekenda (FA) aðgang að gögnum og fundargerðum ráðgjafarnefndar um inn- og útflutning landúnaðarvara vegna tillögu nefndarinnar um að gefa út opinn innflutningskvóta á ógerilsneyddri, lífrænni mjólk vorið 2004.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi atvinnurekenda, sem var send fjölmiðlum í dag ásamt úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Ráðuneytið neitaði að afhenda gögn
Mjólkurbúið Kú óskaði eftir áðurnefndum kvóta þar sem slíkt hráefni var ekki í boði á innanlandsmarkaði. FA óskaði eftir gögnunum sem lögbundinn umsagnaraðili um tillögur og ákvarðanir ráðgjafarnefndarinnar. Ráðuneytið hafði fallist á að afhenda FA hluta gagnanna, en neitaði að afhenda önnur þar sem þau innihéldu upplýsingar um viðskiptakjör og vörðuðu viðskiptahagsmuni aðila.
Aðilar málsins, Mjólkurbúið Kú og Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði, sáu reyndar ekkert að því að gögnin yrðu afhent, en Eimskipafélagið lagðist gegn því að upplýsingar um tilboð sem félagið gerði í flutninga fyrir Kú yrðu afhentar. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það og lagði fyrir ráðuneytið að afhenda níu fundargerðir ráðgjafarnefndarinnar, auk fjögurra tölvupósta og tilboðs Eimskip.
Fagnar niðurstöðunni
„Félag atvinnurekenda fagnar þessari niðurstöðu og telur að með henni sé gefið mikilvægt fordæmi um að stjórnsýsla ráðgjafarnefndarinnar verði gegnsærri þegar fjallað er um beiðnir fyrirtækja um innflutningskvóta á búvörum á grundvelli skorts á þeim innanlands,“ er haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra FA í fréttatilkynningu félagsins. „Sá fjöldi gagna sem er undir í þessu máli sýnir hins vegar hversu flókið og þungt ferlið er, sem fyrirtæki þurfa að ganga í gegnum til að fá jafnsjálfsagðar heimildir.“