Ragnheiður Elín: Verslunin hefur ekki brugðist hlutverki sínu

RAgnheidur-elin.jpg
Auglýsing

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, segir að íslenskar dag­vöru­versl­un­ar­keðjur hafi ekki brugð­ist hlut­verki sínu. Hún telur versl­un­ina í heild hins vegar þurfa að upp­lýsa neyt­endur um hvert mis­munur á ávinn­ingi af geng­is­lækk­unum og lægra inn­kaupa­verði hafi far­ið. Í nýlegri skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um dag­vöru­mark­að­inn kom fram að sá ávinn­ingur sem orðið hefur vegna þessa þátta hafi ekki skilað sér til neyt­enda.

Sér­stök umræða um sam­keppni á smá­sölu­mark­aði fór fram á Alþingi í dag. Upp­hafs­maður umræð­unnar var Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og til­efnið var ný skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um dag­vöru­mark­að­inn.

Hagar með um helm­ings mark­aðs­hlut­deild



Í þeirri skýrslu kom meðal ann­ars fram að velta versl­anna vegna sölu á dag­vöru sé áætluð um 130 millj­arðar króna á síð­asta ári. Hlut­deild Haga, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bónus og Hag­kaup, er sam­kvæmt skýrsl­unni 48 til 49 pró­sent.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að mikil sam­þjöppun hafi orðið á dag­vöru­mark­aði á síð­ustu ára­tug­um. Hagar hafa verið þar í sér­flokki. Mark­aðs­hlut­deild félags­ins jókst úr 39 pró­sent árið 2000 og í 55 pró­sent árið 2009, þegar hún náði hámarki. Þótt mark­aðs­hlut­deildin hafi minnkað lít­il­lega und­an­farin ár, meðal ann­ars vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið skikk­aði félagið til að selja 10-11 versl­an­irnar út úr sam­stæðu sinni, þá eru Hagar samt sem áður með nærri helm­ings­mark­aðs­hlut­deild á mark­aðn­um. Þrír stærstu smá­sal­arnir á Íslandi, Hag­ar, Kaupás og Sam­kaup, eru sam­tals með 72 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á smá­sölu­mark­aði.

Auglýsing

Verður "spenn­andi" að sjá hvað ger­ist með Costco

Þor­steinn spurði Ragn­heiði Elínu meðal ann­ars hvort, í ljósi nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, hún teldi að versl­unin í land­inu hefði brugð­ist hlut­verki sínu. „Nei, ég tel svo ekki vera“ sagði Ragn­heiður Elín. Versl­unin þyrfti hins vegar að upp­lýsa neyt­endur um hvert mis­mun­ur­inn á þeim ávinn­ingi sem skap­að­ist vegna geng­is­lækk­unar og hag­stæð­ari inn­kaupa­verða fór fyrst hann skil­aði sér ekki í hag­stæð­ara verði fyrir neyt­end­ur.

Ragn­heiður Elín sagði einnig að skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sýna að sam­þjöppun á mark­aðnum væri að minn­ka, þótt hún sé enn mik­il. Það væri jákvæð þró­un.

Hún sagð­ist ekki vera að íhuga að breyta lögum um mark­aðs­ráð­andi stöðu fyr­ir­tækja, enda sé lög­gjöf hér­lendis sam­bæri­leg og í öðrum við­mið­un­ar­lönd­um. Ragn­heiður Elín taldi hins vegar að það yrði „spenn­andi“ að fylgj­ast með þróun dag­vöru­mark­að­ar­ins ef og þegar stórir erlendir aðilar komi inn á þann mark­að. Þar á ráð­herr­ann vænt­an­lega við opnun á verslun banda­ríska smá­söluris­ans Costco, sem er þriðja stærsta smá­sölu­keðja í heimi í Kaup­túni í Garða­bæ. Fyr­ir­hugað er að sú verslun opni á fyrri hluta árs­ins 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None