Reykjavík auglýsir langmest hjá 365-prentmiðlum

radhus.jpg
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg aug­lýsir lang­mest hjá 365 prent­miðl­um, en undir það heyra að minnsta kosti Frétta­blaðið og frétta­vef­ur­inn Vís­ir. Hún keypti sam­tals birt­ingar á aug­lýs­ingum fyrir 110,2 millj­ónir króna á árinu 2013. Þar af runnu 19,5 millj­ónir króna, um 17 pró­sent allra keyptra birt­inga, til 365-­prent­miðla. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2014 hefur hlut­deild 365-­prent­miðla auk­ist. Sam­tals hefur Reykja­vík­ur­borg keypt aug­lýs­ingar af miðl­unum fyrir 18,7 millj­ónir króna. Þeir hafa því fengið beint um 21 pró­sent þeirra 90 millj­óna króna sem höf­uð­borg lands­ins eyð­ir í birt­ingar aug­lýs­inga. Þetta kemur fram í svar fjár­mála­stjórna borg­ar­inn­ar, Birgis Björns Sig­ur­jóns­son­ar, við fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina um aug­lýs­inga­kostnað Reykja­vík­ur­borg­ar.

365

Til við­bótar keypti borgin birt­ingar í gegnum birt­ing­ar­hús og aug­lýs­inga­stofur fyrir umtals­vert fé. Hlut­verk birt­ing­ar­húsa er að kaupa birt­ingar í hinum ýmsu miðlum fyrir við­skipta­vini sína. Hluti þeirra birt­inga ratar einnig til 365- prent­miðla. Það hlut­fall aug­lýs­inga­tekna sem rennur frá Reykja­vík­ur­borg til 365-­prent­miðla er því nær örugg­lega hærra en ofan­greindar tölur gefa til kynna.

Auglýsing

Aug­lýs­inga­kostn­aður



[visu­alizer id="8840"]

Rík­is­út­varpið missir hlut­deild



Í fyrra greiddi borgin Rík­is­út­varp­inu næst mest fyrir birt­ingar á aug­lýs­ing­um, eða 8,5 millj­ónir króna. Það þýðir að Rík­is­rekni fjöl­mið­ill­inn fékk 7,7 pró­sent þeirra pen­inga sem stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins eyddi í birt­ingar á aug­lýs­ingum í fyrra. Í ár hefur orðið breyt­ing á og Reykja­vík eytt mun minna í birt­ingar á aug­lýs­ingum hjá Rík­is­út­varp­inu, eða 3,9 millj­ónum króna. Hlut­deild þess af heildar­eyðslu borg­ar­innar hefur því dottið niður í 4,3 pró­sent.

Árvak­ur, sem gefur út Morg­un­blaðið og heldur úti stærsta frétta­vef lands­ins mbl.is, virð­ist með nokkuð stöðuga áskrift af aug­lýs­inga­tekjum frá borg­inni. Á árinu 2013 fékk útgáfu­fé­lagið 5,5 millj­ónir króna þaðan (um fimm pró­sent af heildar­eyðslu), og á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2014 hafði það fengið um 4,7 millj­ónir króna frá henni (rúm­lega fimm pró­sent af heildar­eyðslu).

Svar fjár­mála­stjóra Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina um aug­lýs­inga­kostn­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None