Reykjavíkurbréf: Öfgar að útiloka umræðu um innflytjendamál  

mogginn.jpg
Auglýsing

Það er rétt og skylt að ræða heið­ar­lega og öfga­laust um hversu hratt ríki eigi að taka á móti erlendum rík­is­borg­ur­unum og hvaða skil­yrði þeir eigi að þurfa að upp­fylla. Þetta kemur fram  í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í dag. Þar segir einnig: „Öfgarnar felst í því að reyna að úti­loka slíka umræðu. Umræðu­bannið var meg­in­ein­kenni stjórn­mála­stefnu sem fáir vilja aðhyll­ast nú“. Sú stjórn­mála­stefna sem þar er vísað til er nas­ismi sem fjallað er um í fyrri hluta bréfs­ins.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins. Davíð Odds­son, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Reykja­vík­ur­bréfið er skrifað af öðrum hvorum rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, þeim Davíð Odds­syni eða Har­aldi Johanessen, en birt­ist nafn­laust. Bréfið í dag fjallar um sögu­lega kyn­þátta­hyggju og kyn­þátt­ar­hatur og síðan vikið að umræð­unni eins og hún er í nútím­an­um. Þar segir að nú þurfi „lítið til að hreytt sé „ras­isti“ í menn þegar fyr­ir­ferð­ar­mestu kján­arnir telja sig hafa fengið síð­ustu töl­una í bingóinu sjái þeir orðið múlatti notað eftir merk­ingu sinn­i“.

Auglýsing

Þar segir að nú þurfi „lítið til að hreytt sé „ras­isti“ í menn þegar fyr­ir­ferð­ar­mestu kján­arnir telja sig hafa fengið síð­ustu töl­una í bingóinu sjái þeir orðið múlatti notað eftir merk­ingu sinni“.

Þarna er verið að vísa í gagn­rýni sem kom fram á Reykja­vík­ur­bréf sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í júlí í sumar þar sem höf­undur þess kall­aði Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, vera „blökku­maður (múlatti raun­ar)“. Orða­notk­unin vakti mikla athygli og sætti harðri gagn­rýni.

Kjána­leg hróp um ras­isma



Um­ræða um inn­flytj­enda­mál og mögu­lega útlend­inga­andúð í íslenskum stjórn­málum hefur verið uppi í tengslum við ummæli sem féllu hjá fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins í aðdrag­anda síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­inga, sem virt­ust hafa skilað henni miklu fylgi. Ákveð­inn hluti manna í Sjálf­stæð­is­flokknum hafa á und­an­förnum miss­erum velt upp sterkri afstöðu í inn­flytj­enda­málum sem mögu­legri stjórn­mála­skoðun sem flokk­ur­inn ætti að skoða alvar­lega að taka upp. Skrif þess efnis hafa til að mynda áður birtst í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins.

Í Reykja­vík­ur­bréf­inu í dag segir að það sé jafn­frá­leitt að forð­ast óþægi­lega þjóð­fé­lags­um­ræðu á borð við inn­flytj­enda­mál með aðkasti og hrópum og reyna að þagga hana niður með vísun til eigin for­dóma og hefja ras­ista­stimpil á loft. „Um­ræðan um sam­skipti Ísra­ela og nágranna þeirra á svo sann­ar­lega rétt á sér. Með sama hætti og rétt er og skylt að ræða heið­ar­lega og öfga­laust hversu hratt ríki, stórt eða smátt, ætlar að taka á móti erlendum rík­is­borg­urum og þá með hvaða skil­yrð­um. Öfgarnar fel­ast í því að reyna að úti­loka slíka umræðu. Umræðu­bannið var meg­in­ein­kenni stjórn­mála­stefnu sem fáir vilja aðhyll­ast nú“.

Bréf­rit­ar­inn segir að „kjána­leg hróp manna um ras­isma án þess að ljóst sé hvað rétt­lætir meið­yrðin eru ekki til nokk­urs gagns. Yfir­borðs-kjag af því tagi og ógrund­aðar álykt­anir hafa þó ekki lang­tíma­á­hrif. Allt er sett í einn graut. Fæst stenst nokkra skoð­un“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None