Ríkið eða Seðlabanki munu eignast stóra hluti í Lyfju, Reitum, Sjóvá og Lýsingu

lyfja.jpg
Auglýsing

Íslenska rík­ið, eða Eigna­safn Seðla­banka Íslands, mun eign­ast stóra hluti í fyr­ir­tækjum á borð við Sjó­vá, Lýs­ingu og Lyfju ef slitabú föllnu bank­anna ná að ljúka nauða­samn­ingum í sam­ræmi við þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem stærstu kröfu­hafar þeirra hafa sam­þykkt að fall­ast á. Auk þess myndi slitabú Glitnis þurfa að afhenda íslenska rík­inu yfir sex pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reit­um. Verð­mæti þess­ara eign­ar­hluta hleypur á tugum millj­arða króna. Þetta kemur fram í DV í dag.

Stærstu eign­irnar koma frá slita­búi Glitn­is. Sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingi þess nam bók­fært virði krónu­eigna bús­ins í hluta­bréfum og eig­in­fjár­gern­ingum tæp­lega 29 millj­arðar króna. Hjá Kaup­þingi og gamla Lands­bank­anum eru slíkar eignir lægra metn­ar.

Glitnir á, í gegn­um, í gegnum dótt­ur­fé­lagið SAT eign­ar­halds­fé­lag, 13,67 pró­sent hlut í Sjó­vá. Miðað við gengi bréfa í trygg­inga­fé­lag­inu nú er mark­aðsvirði þess hlutar um 2,2 millj­arðar króna. Glitnir á einnig 6,25 pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reit­um, sem er skráð í Kaup­höll­ina líkt og Sjó­vá, og er ­mark­aðs­verð­mæti hlut­ar­ins um þrír millj­arðar króna. Eign Glitnis í Reitum er að hluta til í eigu Haf-Fund­ing, írsks skúffu­fé­lags í eigu Glitn­is, sem hefur haldið utan um ýmsar eignir í eigu slita­bús­ins.

Auglýsing

Haf-Fund­ing á einnig 85 pró­sent hlut í Lyfju en slitabú Glitnis heldur sjálft beint á 15 pró­sent hlut. Íslenska rík­ið, eða Eigna­safn Seðla­banka Íslands, munu því eign­ast Lyfju að öllu leyti

Sama félag á jafn­framt 85 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu Lyfju á meðan Glitnir fer með 15 pró­sent eign­ar­hlut. Ríkið mun því eign­ast 100 pró­sent hlut í Lyfju í kjöl­far þess að slita­búið mun upp­fylla stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda. Í DV er gróf­lega áætlað að virði Lyfju sé á bil­inu 3,5 til fjórir millj­arðar króna.

Þá er sagt að útlit sé fyrir að ríkið eða Eigna­safn Seðla­banka Íslands muni eign­ast umtals­verðan hlut í Klakka, sem áður hét Exista. Bæði slitabú Glitnis og Kaup­þings eiga stóra hluti í félag­inu. Langstærsta eigna Klakka í dag er fjár­mögn­ung­ar­fyr­ir­tækið Lýs­ing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None