Ríkið gæti fengið tugi milljarða til viðbótar úr Landsbankanum

10016380525-fb1c4ee434-z.jpg
Auglýsing

Íslenska ríkið gæti fengið tugi millj­arða til við­bótar úr Lands­bank­anum verði hluta­fé ­bank­ans fært nið­ur, en banka­ráð bank­ans hyggst leggja til­lögu fyrir aðal­fund bank­ans 18. mars næst­kom­andi, um að bank­inn fái heim­ild til að kaupa allt að 10 pró­sent af hlutafé bank­ans og færa niður hluta­féð í kjöl­far­ið. Verði slíkt gert, getur það fært rík­inu tugi millj­arða til við­bótar við það sem það hefur þegar fengið í gegnum arð­greiðsl­ur. „Til­lagan gerir ráð fyrir að heim­ildin verði til stað­ar, en aðgerðir ráð­ast alltaf af ytri aðstæðum á hverjum tíma,“ sagði Tryggvi Páls­son, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans í sam­tali við Kjarn­ann, í dag, en Bloomberg greindi frá mál­inu í umfjöllun sinni í dag.

Í lok árs í fyrra var eigið Lands­bank­ans 250 millj­arðar króna, og eig­in­fjár­hlut­fallið nærri 30 pró­sent, en það telst hátt í alþjóð­legum sam­an­burð­i. ­Ís­lenska ríkið á tæp­lega 98 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, bank­inn sjálfur á 1,3 pró­sent og um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans eiga 0,8 pró­sent hlut.

Banka­ráðið hefur lagt fyrir aðal­fund­inn til sam­þykktar til­lögur um að greiddur verði arður upp á 24 millj­arða króna vegna rekstr­ar­árs­ins í fyrra. Þar af fær ríkið 23,5 millj­arða króna. Um 20 millj­arðar voru greiddir til rík­is­ins vegna árs­ins 2013.

Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa til­lögur um að ríkið fá meira fé frá Lands­bank­an­um, með fyrr­nefndum aðgerð­um, verið ræddar innan fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en eig­in­fjár­staða Lands­bank­ans hefur styrkst jafnt og þétt eftir hrun­ið, eftir að bank­inn var reistur á grunni inn­lendra eigna hins fallna Lands­banka, sem nú er í slita­með­ferð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None