Embætti ríkisskattstjóra fær upplýsingar um greiðslur sem fara í gegnum útleigusíður á netinu, eins og Airbnb, og fylgist þannig með því hvort fólk sem leigir út íbúðir er að svíkja undan skatti.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra. Skúli segir að menn hafi verið að teygja sig talsvert í það að leigja út til ferðamanna hluta af heimilum sínum og þannig útleiga hafi aukist talsvert og þar af leiðandi eftirlit embættisins með skattaskilum af slíkri útleigu.
„Við förum ekki inn á heimili fólks til þess að ganga úr skugga um það. Þær athuganir eru gerðar öðruvísi. Við fáum upplýsingar um greiðslur sem fara í gegnum þær vefsíður, sem sjá um slíka útleigu. Í kjölfar þess að fá slíkar upplýsingar göngum við úr skugga um að skattaskilin séu í lagi,“ segir Skúli við Morgunblaðið.
Skúli segir að starfsmenn embættis hans hafi notað aukinn mannafla í eftirlitsstörf með rekstri í ferðaþjónustunni almennt og með því hafi náðst góður árangur í baráttunni gegn svartri atvinnustarfsemi í greininni. Starfsmenn fari í heimsóknir í fyrirtæki í auknum mæli og kanni hvernig skattskilum sé háttað.
Hann segir að margir nýir rekstraraðilar séu að taka til starfa, og mjög margir þeirra tengist ferðaiðnaði eða þjónustu við ferðamenn. „Það eru gististaðir, ýmiskonar önnur þjónusta og svo auðvitað veitingarekstur. Þetta er í misjöfnu ástandi og talsverður hluti af tíma eftirlitsmanna okkar fer í það að leiðbeina fólki um það hvernig það eigi að haga sér.“
Fólki virðist umhugað um að koma húsum, herbergjum og gistirýmum hvers konar í útleigu sem fyrst frekar en að huga að reglum sem tengist slíkum rekstri.