Ríkisstjórnin beri ábyrgð og geti ekki firrt sig henni

Flokkur fólksins krefst þess að ríkisstjórnin verji heimilin gegn hækkandi húsnæðiskostnaði og beiti eigendavaldi sínu á bankana – að hún grípi inn í „þessa oftöku af varnarlausum heimilum landsins sem ekki er með nokkru móti hægt að réttlæta“.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins segir að rík­is­stjórnin geti ekki firrt sig ábyrg varð­andi hækk­andi hús­næð­is­kostnað heim­il­anna.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún benti á að stýri­vextir Seðla­bank­ans væru nú 2 pró­sent. „Ef vextir á hús­næð­is­lánum bank­anna væru í sama hlut­falli við stýri­vexti og þeir voru til dæmis í maí 2019 ættu þeir núna að vera 2,7 pró­sent en eru í kringum 4,2 pró­sent og eiga lík­lega eftir að fara hækk­and­i.“ Spurði hún í fram­hald­inu hvort bank­arnir hefðu ekki fengið nóg frá heim­ilum lands­ins.

Auglýsing

„Er engin krafa um sam­fé­lags­lega ábyrgð á eig­endur og stjórn­endur bank­anna? Eru þeir bara alger­lega stikk­fríir og geta alltaf farið sínu fram með hina heilögu arð­sem­is­kröfu fjár­festa að vopni? Hver ákvað að heim­ilin væru auð­lind sem þeir gætu mis­notað að vild? Hvenær var þjóðin spurð hvort hún væri sátt við að vera upp­spretta auðs fyrir útval­inn hóp fjár­festa? Að sjálf­sögðu aldrei,“ svarar hún sjálf.

Segir rík­is­stjórn­ina sitja hjá

„Við hér á Alþingi segj­umst öll ætla að vinna fyrir fólk­ið. En hvað er rík­is­stjórnin að gera fyrir fólkið og heim­ilin í því ástandi sem nú er? Ekk­ert, nákvæm­lega ekk­ert. Hún situr hjá og lætur eins og henni komi þetta ekki við. Eins og heim­ilin séu ekk­ert annað en veiði­lendur bank­anna og þar hafi þeir ótak­mark­aðan kvóta til ofveiða til að auka nú þegar stjarn­fræði­legan hagnað sinn.“

Benti hún enn fremur á að tveir af þremur bönkum væru enn í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. „Rík­is­stjórnin ber ábyrgð og getur ekki firrt sig henni. Hvernig er yfir­leitt hægt að rétt­læta að fyr­ir­tæki með tug­millj­arða hagnað hækki álögur á við­skipta­vini sína? Það er rík­is­stjórn­ar­innar að verja rétt­ar­stöðu heim­il­anna gagn­vart þess­ari oftöku. En nei, hún hefur ákveðið að standa hjá og fórna þeim aft­ur. Að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heim­ili sín eftir síð­asta hrun. Á það að ger­ast aft­ur?“

Ást­hildur Lóa end­aði mál sitt á að segja að Flokkur fólks­ins krefð­ist þess að rík­is­stjórnin verði heim­ilin gegn hækk­andi hús­næð­is­kostn­aði og beitti eig­enda­valdi sínu á bankana, að hún gripi inn í „þessa oftöku af varn­ar­lausum heim­ilum lands­ins sem ekki er með nokkru móti hægt að rétt­læta. Hennar er ábyrgð­in.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent