„Til að tryggja að íslensk náttúra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis hefur ríkisstjórnin samþykkt að verja í sumar 850 milljónum króna til brýnna uppbyggingar- og verndaraðgerða á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón ríkisins.“ Þetta kemur fram í frétt sem birtist á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins nú rétt í þessu.
Þar kemur fram að ráðist verði í 104 verkefni á 51 stað á landinu, auk þess sem viðbótarfé verður varið til aukinnar varðvöslu um land allt. „Mest verður framkvæmt í Skaftafelli og á Þingvöllum, við Geysi, í Dimmuborgum, á miðhálendinu, við Gullfoss, Dyrhólaey, Dynjanda, Stöng í Þjórsárdal og Dettifoss. Verkefnin eru af ýmsum toga en megináhersla er lögð á framkvæmdir vegna göngustíga, útsýnispalla, bílastæða og salernisaðstöðu,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Ítarlegt yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir má nálgast hér.
Framkvæmdaáætlunin, sem gildir fyrir yfirstandandi ár, var unnin í samstarfi við forsætisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. „Kallað var eftir tillögum þeirra stofnana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjölfarið var verkefnum forgangsraðað í samræmi við faglegt mat á því hver þörfin væri. Fjármagnið mun renna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem mun annast umsýslu og eftirlit með verkefnaáætluninni.“
Hæstu upphæðinni, eða 160 milljónum króna, verður varið til uppbyggingar og viðhalds í Skaftafelli. Þingvellir fá hátt í 157 milljónir króna, 34 milljónir munu renna til verkefna við Gullfoss, svæðið við Dynjanda fær úthlutað 34,5 milljónum króna, Dyrhólaey fær 31 milljón, Dimmuborgir 38,5 milljónir og Geysir í Haukadal fær 50 milljónir króna, svo eitthvað sé nefnt.
Unnið að heildarstefnumótun í málaflokknum
Þá segir í fréttinni á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins að ráðist verði í frekari umbætur á vinsælum ferðamannastöðum í eigu og umsjón ríkisins, með það að markmiði að bæta þar skipulag og aðgengi þannig að staðirnir þoli þann ferðamannafjölda sem þangað sækja. Undirbúningur að því verkefni er hafinn, samkvæmt áðurnefndri frétt.
„Einnig er hafin vinna á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðherra við heildarstefnumótun um ferðaþjónustu í landinu og er þar horft til fjölmargra þátta. Einnig verður unnin landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn, í samræmi við frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar er gert ráð fyrir víðtæku samstarfi stjórnvalda og hagsmunaaðila.“