Rúm 80 prósent þeirra sem misstu húsnæði sitt á Suðurnesjum eru nú á leigumarkaði

reykjanesbaer.jpg
Auglýsing

„Nið­ur­stöður könn­unar á afdrifum fjöl­skyldna á Suð­ur­nesjum sem misstu hús­næði sitt á nauð­ung­ar­sölu á árunum 2008 til 2011 leiðir í ljós að 81 pró­sent þeirra býr nú í leigu­hús­næði. Áber­andi er að hátt hlut­fall skuld­ara nýtti sér ekki opin­ber úrræði sem í boði voru og hefðu getað komið þeim að gagni vegna skorts á upp­lýs­ingum um þau.“ Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Umræddri könnun var hleypt af stokk­unum í kjöl­far rann­sókn­ar, sem birt var í des­em­ber árið 2012, um nauð­ung­ar­sölu íbúð­ar­hús­næðis á Suð­ur­nesjum á árunum 2001 til 2011, sem leiddi í ljós að nauð­ung­ar­sölur voru þar hlut­falls­lega mun algeng­ari en ann­ars staðar á land­inu. Í úrtaki voru 335 ein­stak­lingar og fjöl­skyldur en 150 þeirra svör­uðu.

Tíu pró­sent upp á ætt­ingja komin - nauð­ung­ar­sölur hafa mikil áhrif á börn



Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar sem kynntar voru í dag, búa tæp níu pró­sent þeirra sem misstu hús­næðið sitt á nauð­ung­ar­sölu í eigin hús­næði og um 10 pró­sent svar­enda búa ýmist inn á ætt­ingum sínum eða hafa afnot af hús­næði í eigu þeirra.

Þá kemur fram að nauð­ung­ar­sala hafi mikil áhrif á hagi barna. Í apríl 2014 bjuggu börn á um helm­ingi þeirra heim­ila þar sem hús­næðið var selt á nauð­ung­ar­sölu. Um 45 pró­sent barn­anna þurftu að skipta um skóla í kjöl­far­ið, um 32 pró­sent barn­anna misstu tengsl við vini sína og um 15 pró­sent þeirra þurftu að hætta í tóm­stunda- eða íþrótta­starfi.

Auglýsing

Þá vekur athygli að 63 pró­sent þeirra sem misst hafði hús­næði sitt á nauð­ung­ar­sölu hafði ekki nýtt sér nein úrræði vegna fjár­hags- eða hús­næð­is­vanda. „Við­mæl­endur vissu ýmist ekki af þeim, skildu þau ekki eða fengu mis­vísandi upp­lýs­ingar frá ólíkum aðilum um hvaða úrræði stæðu til boða og hvernig ætti að bera sig eftir þeim,“ eins og segir í áður­nefndri frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Bæta þarf upp­lýs­inga­gjöf



Helstu ástæður sem svar­endur rann­sókn­ar­innar gáfu á hús­næð­is­miss­inum voru for­sendu­brestur vegna efna­hags­hruns­ins, eða 27,4 pró­sent svar­enda, 26,5 pró­sent svar­enda ráku hús­næð­is­miss­inn til tekju­lækk­un­ar, með eða án atvinnu­miss­is, og þá leidd­i ­mikil lán­taka og háar afborg­anir til hús­næð­is­missis í 23 pró­sentum til­fella. „Við­mæl­endur í við­talskönn­un­inni nefndu margir að þeim hafi boð­ist hærri lán til íbúða­kaupanna en þeim sjálfum fannst for­svar­an­leg­t.“

Þá segir að lokum um nið­ur­stöður könn­un­ar­inn­ar: „Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar leiða skýrt í ljós að stór hluti þeirra sem könn­unin náði til skorti upp­lýs­ing­ar, þekk­ingu og getu til að leita sér aðstoðar og færa sér í nyt opin­ber úrræði fyrir fólk í fjár­hags- og hús­næð­is­vanda. Höf­undar könn­un­ar­innar telja því mik­il­vægt að skoða betur hvernig koma megi  til móts við þarfir skuld­ara á þeirra for­send­um, til dæmis hvað varðar fram­setn­ingu opin­berra aðila á upp­lýs­ing­um, ráð­gjöf og leið­bein­ing­um, svo og fram­setn­ingu á reglum um hvernig tekið er á skulda­mál­um, hvort sem um er að ræða skuldir almennt eða sér­tæk úrræði vegna hús­næð­is­skulda.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None