Rúmlega 24 milljónir úr ríkissjóði til lögmanna

sersakVef.jpg
Auglýsing

Mál­skotn­aður í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn Sig­ur­jóni Þ. Árna­syni og Sig­ríði Elínu Sig­fús­dótt­ur, fyrr­ver­andi banka­stjóra og fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, fellur allur á rík­is­sjóð en þau voru sýknuð af ákærum um umboðs­svik í morg­un. Sam­tals eru það 18,1 milljón króna til Sig­urð­ar, lög­manns Sig­ur­jóns, og tæp­lega sex millj­ónir til Helgu Mel­korku Ótt­ars­dóttur hrl., lög­mann Sig­ríðar Elín­ar, eða sam­an­legt um 24 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar þá nemur þessi mál­kostn­aður sem lendir á rík­is­sjóði í mál­inu, verði þessi nið­ur­staða end­an­leg, tæp­lega 8,2 pró­sentum af heild­ar­fjár­veit­ingu rík­is­sjóðs til emb­ættis sér­staks sakskókn­ara á næsta ári.

Sam­kvæmt fjár­lög­um, sem nú eru til umræður á Alþingi, verða það um 292 millj­ónir króna, og hefur Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, sagt að verði það heild­ar­fjár­magnið fyrir næsta ár þá muni rann­sókn á tugum mála verða hætt og starfs­fólki sagt upp störf­um.

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá því í morg­un, í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn Sig­ur­jóni og Sig­ríði Elínu, er mála­til­bún­aði ákæru­valds­ins algjör­lega hafnað og ekki talið að emb­ætt­inu hafi tek­ist að sanna neitt af því sem ákært er fyr­ir.

Auglýsing

Sam­kvæmt ákærunni sam­þykktu og und­ir­rit­uðu Sig­ur­jón og Elín sjálf­skulda­á­byrgðir Lands­bank­ans á lána­samn­inga Kaup­þings við tvö félög án utan­að­kom­andi trygg­ina, þann 4. júlí árið 2006, fyrir hönd Lands­bank­ans. Félögin sem um ræðir voru Empennage Inc. og Zim­ham Corp., sem bæði voru skráð á Panama. Sjálf­skulda­á­byrgð­irnar hljóð­uðu sam­tals upp á 6,8 millj­arða króna, en lán Kaup­þings til félag­anna voru tryggð með veði í Lands­bank­anum að nafn­verði fyrir sam­tals 332 millj­ónir króna. Ákært var fyrir umboðs­svik.

Í dómi hér­aðs­dóms í mál­inu, þar sem Guð­jón Mart­eins­son var dóm­ari, segir orð­rétt:

„Ásetn­ingur er sak­næm­is­skil­yrði sam­kvæmt 249. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Þegar allt er virt er það mat dóms­ins að ekki sé upp­fyllt sak­næm­is­skil­yrði 249. gr. almennra hegn­ing­ar­laga að því er varðar mis­notkun á aðstöðu. Verða ákærðu því ekki talin hafa haft ásetn­ing til þess að mis­nota aðstöðu sína enda hefur ekk­ert annað komið fram en að ákærðu hafi aðeins haft hag bank­ans að leið­ar­ljósi við ábyrgð­ar­veit­ing­una [...] Um fjár­tjóns­hættu og að ákærðu hafi stefnt fjár­munum bank­ans í veru­lega hættu er vísað til sömu sjón­ar­miða sem rakin voru í ákæru­lið 1. Því til við­bótar er vísað til fram­burðar ákærða Sig­ur­jóns sem hann hefur stutt eigin útreikn­ingum um áhættu­stöðu bank­ans og til vitn­is­burðar Hauks Þórs Har­alds­son­ar. Á sama hátt og lýst var í ákæru­lið 1 hefur ákæru­valdið ekki aflað full­nægj­andi sönn­un­ar­gagna um fjár­tjóns­hætt­u.“

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort mál­inu verður áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None