Sala á tónlist á Íslandi í frjálsu falli - hefur dregist saman um 75 prósent á 16 árum

000_DV1568243.jpg
Auglýsing

Heild­ar­verð­mæti seldra geisla­diska, hljóm­platna og staf­rænna hljóð­skráa á Íslandi árið 2014 nam 430 millj­ónum króna. Það er rétt ríf­lega þriðj­ungur af sölu­verð­mæti árs­ins 1999, ef reiknað er á verð­lagi síð­asta árs, þegar sölu­velta vegna hljóð­rit­unar náði hámarki. Alls seld­ust 192 þús­und ein­tök af geisla­diskum og hljóm­plötum á árinu 2014 eða 676 þús­und færri ein­tök en árið 1999 þegar salan nam 868 þús­und. Seldum ein­tökum á hvern íbúa lands­ins hefur því fækkað úr 3,1 í 0,6 á 16 árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag­stof­unni um hljóð­rita­sölu sem birtar voru í morg­un.

Sala á geisla­diskum og hljóm­plötum hélt áfram að drag­ast saman í fyrra, líkt og hún hefur gert nán­ast linnu­laust frá árinu 2007. Eina und­an­tekn­ingin var árið 2011 þegar 42 þús­und ein­taka aukn­ing var á milli ára. Lík­legt verður að telj­ast að ótrú­leg­ar vin­sældir plötu Mug­i­son, Haglél, skipti miklu í upp­gjöri þess árs en hún seld­ist í um 30 þús­und ein­tök­um. Árið eftir seldi Ásgeir Trausti frum­burð sinn, Dýrð í dauða­þögn, í um 22 þús­und ein­tökum og hjálp­aði þar með til við að draga úr fall­inu í sölu tón­listar það árið. Síð­ustu tvö ár, 2013 og 2014, hefur seldum ein­tökum hins vegar fækkað um 50 þús­und á ári.

Þegar litið er lengra aftur í tím­ann er hin skarpi sam­dráttur í sölu á geisla­diskum og hljóm­plötum enn meira slá­andi. Frá árinu 1999, þegar seld­ust 868 þús­und ein­tök, hefur salan dreg­ist saman um 78 pró­sent.

Auglýsing

 

Vínýl í stór­sókn en geisla­diskar að hverfa

Þorri þeirra geisla­diska og hljóm­platna sem Íslend­ingar kaupa er inn­lend fram­leiðsla, eða átta af hverjum tíu. Hlut­fall hennar hefur vaxið sam­hliða sam­drætti í sölu almennt en inn­lenda fram­leiðslan var innan við helm­ingur sölu allan tíunda ára­tug síð­ustu aldar og vel fram yfir ald­ar­mót­in.

Vín­ýlhljóm­platan, sem var spáð dauða í kjöl­far til­komu geisla­disks­ins undir lok síð­ustu ald­ar, nýtur vax­andi vin­sælda. Árið 2010 seld­ust um eitt þús­und slíkar hér­lend­is, árið eftir um tvö þús­und ein­tök og árið 2012 um fimm þús­und ein­tök. Á árinu 2013 juk­ust vin­sældir hennar enn og þá seld­ust um átta þús­und ein­tök. Í fyrra varð svo enn eitt stökkið í sölu hljóm­platna þegar um ell­efu þús­und slíkar seld­ust á Íslandi. Sala á hljóm­plötum hefur því auk­ist um þrjú þús­und ein­tök á ári síð­ast­liðin fjögur ár. Hljóm­platan á þó auð­vitað langt í land með að ná þeim vin­sældum sem hún naut framan af síð­ustu öld.

Alls nam sam­dráttur í sölu hljóð­rita (geisla­diska, hljóm­platna og staf­rænna skráa) frá útgef­endum og dreif­endum á síð­asta ári um átta pró­sent­um. Sölu­and­virði hljóð­rita hefur lækkað um 75 pró­sent frá árinu 1999, þegar það er reiknað á föstu verð­lagi.



Þriðj­ungur söl­unnar staf­ræn



Í frétt Hag­stof­unnar segir að hratt d­vín­andi sölu geisla­diska og hljóm­platna sé hægt að rekja til tveggja þátta öðrum frem­ur. "Dregið hefur úr sölu geisla­diska frá því að þeir leystu hljóm­plöt­una að mestu leyti af hólmi á tíunda ára­tugnum og útgáfa efnis stór jókst í kjöl­farið með end­ur­út­gáfum á efni sem áður var til­tækt á hljóm­plöt­um. Hins vegar má skýra út fall í sölu geisla­diska með til­komu nýrra aðferða við deil­ingu tón­listar til not­enda í formi staf­rænna skráa (hvort heldur er sem nið­ur­hal eða streymi). Á síð­asta ári nam sala staf­rænna skráa á vegum þeirra tveggja aðila sem upp­lags­eft­ir­lit hljóm­plötu­út­gef­enda tók til rúmum 123 millj­ónum króna. Það sam­svarar til hátt í þriðj­ungs hljóð­rita­söl­unnar í verð­mæti talið. Hafa ber hug­fast að upp­lýs­ingar um sölu staf­rænna skráa ná ekki til nið­ur­hals og streymis frá erlendum tón­list­ar­veit­u­m."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None