Samherji hagnaðist um ellefu milljarða króna - 1,4 milljarðar í arð til hluthafa

--orsteinnmar.jpg
Auglýsing

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sam­herji hagn­að­ist um rúm­lega ell­efu millj­arða króna á síð­asta ári. Arður til hlut­hafa vegna árs­ins verður 1,4 millj­arðar króna eða 12,4 pró­sent af hagn­aði félags­ins. Tekjur félags­ins á árinu voru rúm­lega 78 millj­arðar króna og hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði nam 16,4 millj­örðum króna, sam­an­borið við 25,4 millj­arða króna árið á und­an. Þá nam sölu­hagnað 8,1 millj­arði. Afkoma af reglu­legri starf­semi var svipuð milli ára.

Greint er frá afkomu síð­asta árs á vef­síðu Sam­herja í dag. Fram kemur að sam­tals greiddi félagið 3,5 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 2,6 millj­arða króna í tekju­skatt og 900 millj­ónir króna í veiði­leyfa­gjald. Tæp­lega helm­ingur af starf­semi Sam­herja sam­stæð­unnar er erlendis en félagið seldi afurðir til 60 landa í fyrra, þar af til 23 landa í Afr­íku.

Eignir Sam­herja um ára­mót námu sam­tals 116,2 millj­örðum króna. Heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar á sama tíma voru 40,8 millj­arðar og bók­fært eigið fé 75,3 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæð­unnar var 64,8% í árs­lok. Veltu­fjár­munir námu 36,7 millj­örðum króna og pen­inga­legar eignir umfram skuldir 4,2 millj­örðum króna. Arð­greiðsla til hlut­hafa verður 1,4 millj­arðar króna sem nemur 12,4% af hagn­aði félags­ins sam­an­borið við 3,3 millj­arða króna arð­greiðslu vegna árs­ins 2013.

Auglýsing

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, segir að árið 2014 hafi farið illa af stað og fyrri helm­ingur árs­ins hafi ekki gefið til­efni til bjart­sýni varð­andi rekst­ur­inn. „Margt spil­aði þar inn í. Til dæmis tók­ust ekki samn­ingar um afla­heim­ildir milli Nor­egs og Evr­ópu­sam­bands­ins fyrr en í mars og á meðan lágu skip okkar í Evr­ópu bundin við bryggju. Einnig var loðnu­ver­tíðin með allra slakasta móti og afurða­verð á ferskum þorski var lág­t.  Á seinni helm­ingi árs­ins tókst engu að síður að veiða og nýta vel þær heim­ildir sem sam­stæðan hefur yfir að ráða og afurða­verð fór hækk­and­i.  Rekstr­ar­af­koma árs­ins 2014 er því mjög sam­bæri­leg árinu áður sem ég get ekki annað en verið ánægður með,“ segir Þor­steinn Már.

Lands­lagið gjör­breytt



Á vef Sam­herja er farið yfir þær breyt­ingar sem orðið hafa á mörk­uðum að und­an­förnu, vegna inn­flutn­ings­banna í Rúss­landi og Níger­íu. Lands­lagið er gjör­breytt á öllum helstum mörk­uðum Sam­herja fyrir upp­sjáv­ar­af­urð­ir, segir Þor­steinn.

„Inn­flutn­ings­bann er til Nígeríu og gjald­eyr­is­skortur en þangað höfum við flutt mikið af upp­sjáv­ar­af­urðum og allar okkar þurrk­uðu afurð­ir. Ekki sér fyrir end­ann á inn­flutn­ings­banni Rússa á íslenskar afurð­ir, þangað sem við fluttum afurðir fyrir vel á fimmta millj­arð á síð­asta ári. Við trúum því að þau mál muni leys­ast og höldum áfram að rækta okkar tryggu við­skipta­sam­bönd þar í landi sem hafa byggst upp á löngum tíma og gagn­kvæmu trausti. Þriðji stóri mark­aður okkar fyrir upp­sjáv­ar­af­urðir hefur verið í Úkra­ínu. Þar eru aðstæður mjög erf­iðar og mik­ill sam­dráttur hefur verið í inn­flutn­ing­i.  Það eru því ærin verk­efni framundan að leita leiða til að hámarka verð­mæti upp­sjáv­ar­afla okkar á næstu miss­er­um.

Verk­efnin eru til að leysa og það er af nógu að taka en við erum vel í stakk búin að takast á við síbreyti­legar aðstæð­ur.  Við höfum mikið af hæfu starfs­fólki sem hefur tek­ist á við fjöl­margt með okk­ur. Við munum þétta rað­irnar til að klára þessar fjár­fest­ingar og mæta áskor­unum sem framundan eru,“ seg­ir hann.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None