Samkeppni ekki á radarnum hjá ríkisstjórninni – og fyrir vikið ráði sérhagsmunir

Formaður Viðreisnar gagnrýnir ríkisstjórnina og segir að hún kjósi að stinga höfðinu í sandinn frekar en að ræða af einhverri alvöru hvernig tryggja megi eðlilega samkeppni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að íslenskur almenn­ingur sé reglu­lega minntur á mik­il­vægi virkrar sam­keppni og kostn­að­inn sem fylgir sam­keppn­is­skorti, hvort sem um sé að ræða fákeppni í banka­þjón­ustu, á trygg­inga­mark­aði, elds­neyt­is­mark­aði, í land­bún­aði eða sjáv­ar­út­vegi. Áhrifin séu alltaf þau sömu, neyt­endum í óhag.

Þetta kom fram í máli for­manns­ins á Alþingi í vik­unni en síð­asti þing­fund­ur­inn fyrir sum­ar­frí var aðfara­nótt fimmtu­dags.

Hún telur jafn­framt að fákeppn­is­hagn­aður í fjár­mála­kerf­inu sé ástæða þess að hér sé dýrasta banka­þjón­usta í Evr­ópu. Þennan kostnað þurfi fyr­ir­tæki og almenn­ingur að sitja uppi með. Sömu sögu sé að segja með trygg­inga­þjón­ustu. Hátt mat­vöru­verð og elds­neyt­is­verð hafi einnig leikið Íslend­inga grátt.

Auglýsing

Segir rík­is­stjórn­ina ekki vilja ræða málin

Þor­gerður Katrín sagði að þessi vanda­mál væru að mestu afleið­ing sam­keppn­is­leysis og póli­tískra ákvarð­ana. Virk­ari sam­keppni á mark­aði væri brýn nauð­syn fyrir neyt­end­ur, ekki síst með verð­bólg­una grass­er­andi eins og nú væri. Meðan þetta væri hins vegar eitt af for­boðnum umræðu­efnum stjórn­valda þá breytt­ist lít­ið.

Hún sagði enn fremur að rík­is­stjórnin kysi að stinga höfð­inu í sand­inn frekar en að ræða af ein­hverri alvöru hvernig tryggja mætti eðli­lega sam­keppni, til að mynda á vöru- og þjón­ustu­mark­aði.

„Þess vegna var til­laga okk­ar, um heild­stæða úttekt á áhrifum virkrar sam­keppni, ekki afgreidd úr nefnd á sínum tíma, ekki heldur á þing­inu sem nú er að líða, ekki frekar en til­laga okkar um mat á sam­keppn­is­rekstri rík­is­ins. Þess vegna er eng­inn áhugi á til­lögum okkar um að almennar sam­keppn­is­reglur ríki í land­bún­aði og eng­inn áhugi er á að mark­aðslög­mál gildi í sjáv­ar­út­vegi. Og svo er auð­vitað eng­inn, ekki nokk­ur, áhugi á að ræða vaxta­mun­inn í fjár­mála­þjón­ustu og áhrif sífelldra geng­is­breyt­inga á íslenskt atvinnu- og heim­il­is­líf.

Þetta eru risa­þættir í sam­keppni, hvernig við getum aukið lífs­gæði fólks, og rík­is­stjórnin vill ekki ræða þessi mál. Sam­keppni er ekki inn á rad­arnum hjá rík­is­stjórn­inni, svo ein­falt er það, og fyrir vikið ráða sér­hags­mun­ir,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent