Samkeppniseftirlitið vill að Ríkissaksóknari rannsaki hvaðan og hvernig trúnaðarupplýsingum um efni kæru eftirlitsins til Sérstaks saksóknara hafi verið miðlað til óviðkomandi aðila. Samkeppniseftirlitið hefur sent erindi þess efnis til Ríkissaksóknara, en tilefnið er umfjöllun Kastljós um málið.
Samkeppniseftirlitið lítur miðlun upplýsinganna mjög alvarlegum augum. Hjá eftirlitinu hefur verið gripið til aðgerða til að ganga úr skugga um hvort upplýsingarnar hafi borist þaðan.
Tilkynning Samkeppniseftirlitsins vegna málsins:
Samkeppniseftirlitið hefur í dag beint erindi til ríkissaksóknara þar sem farið er fram á opinbera rannsókn á því hvaðan og hvernig trúnaðarupplýsingum um efni kæru Samkeppniseftirlitsins til embættis sérstaks saksóknara hafi verið miðlað til óviðkomandi aðila. Um er að ræða kæru um ætluð brot tiltekinna starfsmanna tveggja fyrirtækja á samkeppnislögum. Er þetta gert í tilefni af umfjöllun Kastljóss um málið nú í vikunni.
Samkeppniseftirlitið lítur framangreinda miðlun upplýsinga mjög alvarlegum augum. Hefur ríkissaksóknara verið greint frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til innan Samkeppniseftirlitsins til þess að ganga úr skugga um hvort upplýsingarnar hafi borist þaðan og jafnframt auðvelda rannsókn málsins.