Samráðsnefnd um afnám fjármagnshafta fundaði síðastliðinn föstudag

11175736683_6ef4af9337_z.jpg
Auglýsing

Sam­ráðs­nefnd þing­flokka um afnám fjár­magns­hafta fund­aði síð­ast­lið­inn föstu­dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Fund­ur­inn var hald­inn rétt fyrir lokun mark­aða, en eftir að þeir lok­uðu til­kynnti Seðla­bank­inn að hann hefð­i breytt und­an­þágu­listum og reglum vegna gjald­eyr­is­mála til þess að búa í hag­inn fyrir frek­ari skref í átt að losun fjár­magnsafta. Í nefnd­inni sitja full­trúar allra þing­flokka.

Á fund­inum voru þessar breyt­ingar kynntar fyrir sam­ráðs­nefnd­inni. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sat fund­inn fyrir hönd stýrinefndar um losun hafta og kynnti áætl­anir Seðla­bank­ans fyrir sam­ráðs­nefnd­inni. Fram­kvæmda­stjórn um losun hafta, sem er stýrt af Glenn Kim, sat ekki fund­inn. Ekk­ert annað var á dag­skrá fund­ar­ins.

Byrjað að hrinda Project Slack í fram­kvæmd



Þetta var fyrsti fundur sem boð­aður hefur verið með sam­ráðs­nefnd­inni síðan í des­em­ber 2014. Í byrjun þess mán­aðar voru tvær hug­myndir sem tengj­ast losun fjár­magns­hafta kynntar fyrir nefnd­inni. Önnur hug­myndin snérist um að knýja eig­endur aflandskróna til aðskipta eignum sínum yfir í skulda­bréf til meira en 30 ára, en þær krónur eru nú um 300 millj­arðar króna. Hún kall­ast Project Slack. Sú breyt­ing sem Seðla­bank­inn til­kynnti um á föstu­dag er talin vera fyrsta skref í þá átt.

Hin hug­myndin snérist um flatan útgöngu­skatt á allar eignir sem vilja yfir­gefa íslenska hag­kerf­ið. Ekk­ert var rætt um hversu hár slíkur skattur ætti að vera á þessum fundi. Morg­un­blaðið sagði í lok síð­asta árs að hann ætti að vera um 35 pró­sent, Bloomberg-frétta­veitan sagð­ist hafa heim­ildir fyrir því að hann ætti að vera 20-45 pró­sent, Indefence-hóp­ur­inn hefur kallað eftir því að hann verði um 60 pró­sent og Ögmundur Jón­as­son, þing­maður Vinstri grænna, hefur sagt opin­ber­lega að hann telji að útgöngu­skattur eigi að vera allt að 70 pró­sent.

Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son sagði hins vegar á Alþingi í síð­ustu viku að engin ákvörðun hefði verið tekin um útgöngu­skatt. „Þaðan af síður hef ég boðað ein­hverja til­tekna pró­sentu, sem menn eru farnir að vísa til,“ sagði Bjarni.

 Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síðustu Icesave- samninganefndina. Hann er einn helsti ráðgjafi íslenska ríkið við losun hafta. Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síð­ustu Ices­a­ve- samn­inga­nefnd­ina. Hann er einn helsti ráð­gjafi íslenska ríkið við losun hafta.

Brot á trún­aði getur skilað mönnum í fang­elsi



Kjarn­inn greindi frá því í gær að sér­fræð­ing­ar, innan og utan stjórn­ar­ráðs­ins, sem taka þátt í vinnu við losun fjár­magns­hafta eru bundnir af inn­herja­reglum sem stað­festar voru af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, 7. októ­ber 2014 og tóku gildi 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Brjóti þeir gegn við­kom­andi reglum gætu þeir átt allt að sex ára fang­els­is­vist yfir höfði sér. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar vegna vinnu við losun fjár­magns­hafta.

Það eru ekki bara sér­fræð­ing­arnir sem þurfa að skrifa undir skjöl vegna hafta­los­un­ar­á­ætl­un­ar. Þeir þing­menn sem sitja í sam­ráðs­nefnd þing­flokka um afnám fjár­magns­hafta hafa allir und­ir­ritað þagn­ar­heit sem í felst að þeir gæti „þag­mælsku um atriði sem ég kann að fá vit­neskju um í starfi mínu fyrir hóp­inn sem leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls. Þagn­ar­skyldan skal hald­ast þótt störfum hóps­ins sé lok­ið“.

Þegar þing­menn­irnir skrif­uðu undir þagn­ar­heitið var þeim einnig gert ljóst að þeir kunni, í tengslum við störf hóps­ins, að fá vit­neskju um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og telj­ist þar með inn­herjar sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None