Samráðsnefnd um losun fjármagnshafta boðuð til fundar í hádeginu

Al--ingi.jpg
Auglýsing

Sam­ráðs­nefnd um afnám fjár­magns­hafta hefur verið boðuð til fundar í hádeg­inu í dag. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans stendur til að kynna henni stöðu stjórn­valda í veg­ferð þeirra í átt að losun fjár­magns­hafta. Í sam­ráðs­nefnd­inni sitja Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar Fram­tíð­ar, Jóhann Haukur Gunn­ars­son, full­trúi Pírata og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu er for­maður nefnd­ar­inn­ar.

Ráð­gjafa­nefndin skipuð í sumar



Í lok síð­ustu viku var slita­búi Lands­bank­ans veitt heim­ild fyrir und­an­þágu frá fjár­magns­höftum svo hann gæti greitt for­gangs­kröfu­höfum sínum 400 millj­arða króna til við­bótar við það sem þegar er búið að greiða þeim. Á móti sam­þykkti slita­búið að lengja í greiðslum á skulda­bréfum sem nýi Lands­bank­inn skuldar hon­um, upp á 248 millj­arða króna, fram til árs­ins 2026. Áður átti að greiða skulda­bréfin upp í októ­ber 2018.

Í byrjun júlí 2014 samdi fjár­mála- og efna­hahags­ráðu­neytið við lög­manns­stof­una  Cle­ary Gott­lieb Steen & Hamilton LLP, ráð­gjafa­fyr­ir­tækið White Oak Advis­ory LLP og Anne Kru­eger, pró­fessor í hag­fræði við John Hop­k­ins Uni­versity og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, um að vinna með íslenskum stjórn­völdum að losun fjár­magns­hafta. Hjá Cle­ary Gott­lieb Steen & Hamilton starfar lög­mað­ur­inn Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síð­ustu Ices­a­ve- samn­inga­nefnd­ina. Hann hefur stýrt vinnu lög­manns­stof­unnar í þessu verk­efni.

Auglýsing

Hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton starfar lögmaðurinn Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síðustu Icesave- samninganefndina. Hann hefur stýrt vinnu lögmannsstofunnar í þessu verkefni. Hjá Cle­ary Gott­lieb Steen & Hamilton starfar lög­mað­ur­inn Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síð­ustu Ices­a­ve- samn­inga­nefnd­ina. Hann hefur stýrt vinnu lög­manns­stof­unnar í þessu verk­efn­i.

Sam­hliða réð Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fjóra sér­fræð­inga til að vinna að losun hafta í nokk­urs konar fram­kvæmda­stjórn með fyrr­greindum ráð­gjöfum og í umboði stýrinefnd­ar.  Þeir eru Bene­dikt Gísla­son, ráð­gjafi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í hafta­mál­um, Eiríkur Svav­ars­son, hrl., Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­banka Íslands og Glenn V. Kim sem jafn­framt leiðir verk­efn­ið.

Slita­stjórnir á fund á morgun



Bloomberg greindi frá því í lok síð­ustu viku að til stæði að kynna áætl­anir stjórn­valda við losum hafta fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd í morg­un. Það reynd­ist ekki rétt. Kjarn­inn hefur greint frá því að í til­lögum fram­kvæmda­stjórnar um losun fjár­magns­hafta felist meðal ann­ars til­lögur um að lagt verði á sér­stakt útgöngu­gjald á útgreiðslur til erlendra aðila sem eigi kröfur á fallna banka, vilji þeir kom­ast út úr íslensku höft­un­um. Morg­un­blaðið hefur sagt að til­lög­urnar geri ráð fyrir að skatt­ur­inn verði 35 pró­sent og að engin grein­ar­munur verði gerður á því hvort greiðsl­urnar verði fram­kvæmdar í íslenskum krónum eða gjald­eyri. Allt sé und­ir.

Verði það nið­ur­staðan er ljóst að slita­búin verði að greiða nokkur hund­ruð millj­arða króna í sér­stakan skatt í rík­is­sjóð.

Í þeim til­lögum sem liggja fyrir er stefnt að því að vinna á aflandskrónu­vand­anum sem til staðar er utan þrota­búa föllnu bank­anna og gagn­vart því að veita inn­lendum aðilum tæki­færi til að fjár­festa utan hafta í erlendum verð­bréf­um.

Slita­stjórnir Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa síðan verið boð­aðar á fund ráð­gjaf­ar­nefndar um losun fjár­magns­hafta á morgun  klukkan 14. Fund­ur­inn mun fara fram á Grand hótel í Reykja­vík og á honum eiga slita­stjórn­irnar að kynna afstöðu sinna til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höft­um, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim. Allir full­trúar slita­stjórn­anna eiga að funda með ráð­gjafa­hópnum í einu.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None