Samtök atvinnulífsins (SA) leggjast gegn frumvarpi Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, ráðherra ferðamála, um náttúrupassa. Þetta kemur fram í umsögn SA um frumvarpið og frétt inn á heimasíðu samtakanna.
Samtökin segja náttúrupassan vera nýjan skatt og að alls óvíst sé hvort tekjur af honum muni skila sér til uppbyggingar á innviðum ferðaþjónustunnar. Þá er bent á kostnaðinn við að koma skattinum á og eftirlit með honum sé að öllum líkindum vanmetinn. Auk þess sé óljóst hvernig stjórnvaldssektir á erlenda ferðamenn muni skila sér í ríkissjóð.
Samtökin hafa miklar áhyggjur af nýjum sköttum sem ríkisstjórnin undirbýr að leggja á atvinnulíf og almenning í landinu, samkvæmt frétt á heimasíðu samtakanna.
Í umsögn samtakanna er bent á að ríkið og stofnanir þess hafi heimildir til að leggja á alls kyns þjónustugjöld og að unnt sé að innheimta gjald fyrir bílastæði, heimreiðir, salerni, gestastofur og fleira í ríkari mæli en nú er gert.
Þá segir SA í umsögn sinni að lokum:
„Almenn uppbygging innviða og styrking almenns öryggis verði enn um sinn fjármögnuð með beinum framlögum úr ríkissjóði og þá munu sívaxandi tekjur af enn fleiri ferðamönnum koma að góðum notum án þess að gripið sé til enn einnar skattlagningar eins og náttúrupassa. Við frekari vinnslu þessa máls er mikilvægt að hafa sem nánast samráð við ferðaþjónustuna og tryggja sem víðtækasta samstöðu um þá leið sem valin verður.“