Samúel Örn Erlingsson hefur verið ráðinn frétta- og dagskrárgerðarmaður RÚV á Suðurlandi. Undanfarið hefur Samúel Örn sinnt kennslu auk þess að vinna sjálfstæða sjónvarpsþætti fyrir RÚV en hann hefur áratuga reynslu sem fréttamaður, lengst af sem íþróttafréttamaður RÚV. Samúel bauð sig fram til Alþingis fyrir hönd Framsóknarflokksins í kosningunum 2007 en náði ekki kjöri. Hann var varaþingmaður flokksins á kjörtímabilinu 2007 til 2009. Samúel Örn verður með aðsetur á Hellu.
Tilkynnt var í dag um ráðningu þriggja nýrra starfsmanna á fréttastofu RÚV á landsbyggðinni. Auk Samúels Arnar er Þórgunnur Oddsdóttir ráðin í starf dagskrárgerðarmanns á Norðurlandi. Hún mun fyrst og fremst vinna efni fyrir sjónvarpsþáttinn Landann. Hún verður með aðsetur á Akureyri.
Þá er Halla Ólafsdóttir ráðin í starf frétta- og dagskrárgerðarmanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Halla er meðal annars menntuð í kvikmyndagerð og hefur unnið við gerð bæði stuttmynda og heimildarmynda. Halla mun flytja fréttir af Vesturlandi og Vestfjörðum, auk þess að vinna dagskrárefni fyrir útvarp. Halla verður með aðsetur á Ísafirði.
„Þessir nýju starfsmenn verða hluti af kraftmiklum starfsmannahópi RÚV um allt land og munu taka virkan þátt í að miðla lífinu í landinu til fólksins í landinu. Enn hefur ekki verið ráðið í auglýsta stöðu frétta – og dagskrárgerðarmanns á Austurlandi en stefnt er að því í haust,“ segir í tilkynningu.
„Markmiðið með þessum ráðningum er á meðal annars að auka svæðisbundna umfjöllun í hverjum landshluta fyrir sig, bæði í málum og myndum, á sérmerktum landshlutasíðum á vef RÚV. Auk þess verður áfram lögð áhersla á vandaðan fréttaflutning úr öllum landshlutum í öllum miðlum RÚV.“