Sautján fyrirtæki skora á SAF að beita sér fyrir komugjöldum

14563792783_bbd331cd9e_z.jpg
Auglýsing

Sautján fyr­ir­tæki í Sam­tökum ferða­þjón­ust­unnar (SAF) skora á stjórn sam­tak­anna að hún beiti sér fyrir því að tekin verði upp sér­stök komu­gjöld á Íslandi, til að fjár­magna við­hald og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri áskorun sem fyr­ir­tækin send­u ­stjórn SAF á föstu­dag­inn og Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Vilja að SAF beiti sér fyrir vilja félags­manna



Í áskor­un­inni segir að með því móti myndi stjórn SAF starfa í sam­ræmi við vilja og sann­fær­ingu meiri­hluta félags­manna, sem fram hafi kom­ið í skoð­ana­könnun sam­tak­anna í haust. Kjarn­inn sagði frá nið­ur­stöðum umræddrar könn­unnar í des­em­ber, en þar var umdeildur nátt­úrupassi settur í sjötta sætið yfir þá val­kosti sem félags­menn SAF vildu að sam­tökin myndu berj­ast fyr­ir­ til að standa undir fjár­mögnun á nauð­syn­legu við­haldi og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða á Íslandi.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar vildi yfir­gnæf­andi meiri­hluti félags­manna SAF að sér­stökum komu­gjöldum í þágu nátt­úru­verndar yrð­i komið á. Því kom það mörgum félags­mönnum innan SAF á óvart þegar stjórn sam­tak­anna ákvað að leggja til að gistin­átta­gjaldið yrði hækk­að, sem var fjórði álit­leg­asti val­kost­ur­inn að mati félags­manna SAF sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni. Óánægja með ákvörðun stjórn­ar­innar leiddi að minnsta kosti til einnar úrsagnar úr sam­tök­unum og Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir því að fleiri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki séu að íhuga að segja skilið við SAF vegna þessa.

Telja að ekki náist sátt um nátt­úrupassa



Þá segir orð­rétt í áskorun ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna til stjórnar SAF: „Þó að liggi fyrir til­laga iðn­að­ar­ráð­herra (um nátt­úrupassa), þá á hún eftir að fá þing­lega með­ferð og margt í umræð­unni bendir til að um þá til­lögu náist ekki sátt. Því er brýnt að SAF komi með nýtt útspil, sem reikna má með að um náist víð­tæk sátt, bæði meðal félags­manna SAF, félaga­sam­taka sem tengj­ast ferða­þjón­ustu, ann­arra sem við ferða­þjón­ustu starfa og þjóð­ar­innar allr­ar.“

Ljóst er að tölu­verður þungi er fólg­inn í áskor­un­inni til stjórnar SAF, sér­stak­lega í ljósi þess að nokkur umsvifa­mikil ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eru á list­an­um. Þeirra á meðal eru Center Hot­els, GoNorth ehf., Hotel Cabin/­Klett­ur/Örk, Iceland Exc­ursions, Kea-hot­els, Norð­ur­sigl­ing og Viator ehf.

Auglýsing

Ferðamenn slaka á í náttúru Íslands. Ferða­menn slaka á í nátt­úru Íslands­.

Röngum upp­lýs­ingum haldið á lofti



Pétur Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Viator, seg­ir, í sam­tali við Kjarn­ann, að SAF séu komin aftur á byrj­un­ar­reit eftir að Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, hafn­aði mála­miðl­un­ar­til­lögu stjórnar sam­tak­anna um hærra gistin­átta­gjald. „Það er nauð­syn­legt að næstu skref verði tekin í sam­ræmi við vilja félags­manna. Það er óskilj­an­legt að komu­gjalds­leið­inni hafi verið ýtt út af borð­inu án nokkurar skoð­unar og þar hafi bein­línis röngum upp­lýs­ing­um, um að sú leið væri ólög­leg, verið haldið á lofti. Gögn sem sanna hið gagn­stæða hafa ekki verið lögð fram og þar af leið­andi ekki fengið neina umfjöll­un.“

Helstu rök ráð­herra ferða­mála og SAF gegn komu­gjöldum hafa verið að þau brjóti í bága við alþjóða­samn­inga á borð við EES-­samn­ing­inn og Schengen. Sam­kvæmt lög­fræði­á­liti frá lög­manns­stof­unni LEX, sem unnið var fyrir SAF, eru komu­gjöld hins vegar raun­hæfur kost­ur. Kjarn­inn sagði frá lög­fræði­á­lit­inu sem unnið var fyrir SAF í des­em­ber. Nið­ur­staða lög­fræði­á­lits­ins á svo sem ekki að koma á óvart, þar sem komu­gjöld lifa góðu lífi víða í Evr­ópu, eins og Kjarn­inn hefur greint frá.

Hætta á að SAF klofni eða lið­ist í sundur



Fram­kvæmda­stjóri Viator er þeirrar skoð­unar að komu­gjalds­leiðin sé ein­faldasta, ódýrasta og skil­virkasta leiðin til að afla tekna til handa nátt­úru­vernd­ar. „Hún er mjög vel fær, krefst lít­ils und­ir­bún­ings, er full­kom­lega lög­leg og brýtur engar alþjóð­legar skuld­bind­ing­ar, þvert ofan í það sem haldið hefur verið fram. Með þess­ari áskorun erum við að minna stjórn SAF á að standa vörð um hags­muni félags­manna, geri hún það ekki er hætta á að hún missi traust sinna eigin félaga og sam­tökin klofni eða lið­ist í sund­ur.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None