Seðlabankastjóri: Aflandskrónuútboðið er handan við hornið

marpng-1.jpg
Auglýsing

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi stýri­vaxta­á­kvörð­unar í dag að útboð aflandskróna sé handan við horn­ið. Það verði ekki í októ­ber, en áður höfðu haust­mán­uð­irnir októ­ber eða nóv­em­ber verið nefndir lík­legar tíma­setn­ing­ar, en eins og staðan sé núna þá verði útboðið haldið rétt fyrir eða eftir ára­mót. Már sagði að mikil vinna hafi átt sér stað við und­ir­bún­ing, meðal ann­ars í sam­ráði við erlenda ráð­gjafa. „Ég held þeir séu í bank­anum í dag,“ sagði Már á fund­in­um.

Útboð aflandskróna er einn stórra þátta í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Áætl­unin var kynnt í júní síð­ast­liðn­um. Már sagði raun­veru­leik­ann oft reyn­ast flókn­ari en áætl­anir geri ráð fyrir og því geti hann ekki gefið nákvæm­ari dag­setn­ingu útboðs­ins.

Auglýsing


Annar stór þáttur í los­un­ar­á­ætlun stjórn­valda er upp­gjör slita­bú­anna. Báðir þættir munu hafa mikil áhrif á hag­stærðir í banka- og efna­hags­kerf­inu, þar á með­al­ ­lausa­fjár­stöðu bank­anna. Á fund­inum í morgun sagði Már það skyn­sam­legt að láta þessa tvo við­burði ekki ger­ast sam­tím­is. „Þótt við getum reiknað út áhrif aðgerð­anna á kerfið í heild þá er ekki alveg ljóst hvernig það fellur á ein­stakar stofn­an­ir. Það geta verið rök fyrir því að hafa meira bil á milli þerra,“ sagði Már og tók fram að á næstu vikum muni bank­arnir vita nánar hver áhrif aðger­anna verða. Gefa verði bönk­unum svig­rúm til að und­ir­búa sig. „Það er mik­il­vægt að þetta verði eins lítið högg og hægt er. Við vitum að báðar aðgerðir eru hag­stæðar fyrir þjóð­ar­búið en það þarf að huga að áhrifum á starf­andi banka.“



Einn liður í und­ir­bún­ingi fyrir þessar aðgerð­ir, þ.e. aflandskrón­u­út­boð og upp­gjör slita­bú­anna, er hækkun bindi­skyldu úr tveimur pró­sentum í fjögur pró­sent. Pen­inga­stefnu­nefnd til­kynnti um hækkun bindi­skyld­unnar í morg­un, þegar hún til­kynnti um óbreytta stýri­vexti.



Á fund­inum sagði Már að breyt­ing á bindi­skyldu væri tíma­bundin aðgerð hluti af los­un­ar­á­ætl­un­inni. Breyt­ingin væri ekki gerð til að auka aðhald pen­inga­stefn­unn­ar, þótt áhrif hækk­un­ar­innar liggi ekki nákvæm­lega fyrir hvað það varð­ar. „Við getum ekki verið viss um að áhrifin séu hlut­laus, en þau ættu í öllu falli ekki að vera mik­il,“ sagði Már.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None