Seðlabankinn kaupir og kaupir gjaldeyri - Hreinn gjaldeyrisforði stækkar

sedlabankinn.jpg
Auglýsing

Útlit er fyrir að hreinn gjald­eyr­is­forði Seðla­banka Íslands verði þrefalt stærri um næstu ára­mót en hann var í árs­byrj­un, þrátt fyrir vænt­an­lega sölu bank­ans á gjald­eyri í stóru aflandskrón­u­út­boði í haust í tengslum við áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Mikið gjald­eyr­is­inn­flæði und­an­farna árs­fjórð­unga, meðal ann­ars vegna mik­ils vaxtar ferða­þjón­ust­unnar og bata í við­skipta­kjörum, hefur gert Seðla­bank­anum kleift að auka veru­lega kaup á gjald­eyri.

Grein­ing Íslands­banka fjallar um stækk­andi gjald­eyr­is­forða Seðla­bank­ans í dag og bendir með­al­ ann­ars á að júní síð­ast­lið­inn hafi ver­ið ­met­mán­uður í kaupum Seðla­bank­ans á gjald­eyri. Bank­inn keypti alls 187 millj­ónir evra á milli­banka­mark­aði, sem sam­svarar ríf­lega 29 millj­örðum króna miðað við með­al­gengi. Fyrra mán­að­ar­met var 115 millj­ónir evra í ágúst 2014. „Gjald­eyr­is­kaupin í júní end­ur­spegla að stórum hluta mikið inn­flæði gjald­eyris vegna þjón­ustu­við­skipta, og er næsta víst að krónan hefði styrkst hressi­lega í síð­asta mán­uði ef ekki hefði verið fyrir inn­grip bank­ans,“ segir í Mmorg­un­korni grein­ingar Íslands­banka.

„Það sem af er ári hefur Seðla­bank­inn keypt 551 milljón evra á milli­banka­mark­aði, og greitt fyrir tæp­lega 82 millj­arða króna. Það er ríf­lega tvö­falt hærri fjár­hæð en á fyrri hluta árs­ins 2014. Hreinn gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans, þ.e. gjald­eyr­is­eignir að frá­dregnum öllum skuld­bind­ingum í gjald­eyri, hefur frá ára­mótum auk­ist úr 306 millj­ónum evra í 664 millj­ónir evr­a,“ segir enn­fremur en aukn­ingin sam­svarar hækkun úr rúm­lega 47 millj­örum króna í um 95 millj­arða króna. Ekki er útlit fyrir að Seðla­bank­inn dragi úr kaupum á gjald­eyri á næst­unni, enda háanna­tími byrj­aður í ferða­þjón­ustu og útlit fyrir þokka­leg vöru­skipti, segir grein­ing­in.

Auglýsing

Fjallað er um vænt­an­leg gjald­eyr­is­út­boð í haust og er það mat grein­ingar Íslands­banka og gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans á sum­ar­mán­uðum dugi til að útvega gjald­eyri fyrir útboð­ið.

„Fyrir liggur að SBÍ mun bjóða gjald­eyri úr gjald­eyr­is­forð­anum til sölu í stóra útboð­inu sem haldið verður fyrir aflandskrónu­eig­endur í haust og kynnt var sem hluti áætl­unar stjórn­valda um losun hafta í síð­asta mán­uði. Auk reiðu­fjár í evr­um verður boðið upp á 20 ára rík­is­bréf í íslenskum krónum og með­al­langt rík­is­bréf í evr­um í útboð­inu. Aflandskrón­urnar nema nú u.þ.b. 291 millj­örðum króna, en þar af 175 millj­arðar króna í rík­is­tryggðum skulda­bréfum og 116 millj­arðar króna í inn­lán­um.

Ef við gerum ráð fyrir að skipt­ing milli evr­u reiðu­fjár ann­ars vegar og skulda­bréfa hins vegar verði svipuð og eigna­skipt­ing aflandskróna nú, og verðið á evr­u verði a.m.k. ekki lægra í útboð­inu en í febr­ú­ar­út­boði Seðla­bank­ans (EUR/ISK 200) gæti Seðla­bank­inn selt í kring um 500 millj­ónir evr­a úr gjald­eyr­is­forð­anum í útboð­inu. Við teljum þó að þessar for­sendur séu í ríf­legri kant­in­um, og salan úr forð­anum verði vænt­an­lega minni. Bæði gæti skiptigengið orðið hærra og eins gæti Seðla­bank­inn viljað beina aflandskrónu­eig­endum í rík­ari mæli í skulda­bréf­in.



Það virð­ist því lík­legt að gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans á sum­ar­mán­uðum dugi ein og sér til þess að útvega gjald­eyri fyrir aflandskróna­út­boð­ið. Að því gefnu að gjald­eyr­is­kaup SBÍ á síð­ustu fjórum mán­uðum árs­ins verði svipuð að jafn­aði og síð­asta vetur áætlum við að hreinn gjald­eyr­is­forði verði u.þ.b. 800-900 millj­ónir evr­a í lok árs. Jafn­gildir það allt að þre­földun frá stöð­unni í árs­byrj­un. Þess ber að geta að gjald­eyr­is­forði bank­ans í heild er mun stærri. Í lok maí síð­ast­lið­ins nam hann t.a.m. tæp­lega 4 millj­örðum evr­a (588 millj­arðar króna), en stærstum hluta þeirrar fjár­hæðar var aflað með skulda­bréfa­út­gáfu rík­is­sjóðs í evr­um og Banda­ríkja­doll­ar. Það er því mik­il­vægt að hreinn gjald­eyr­is­forði auk­ist nú jafn hratt og raun ber vitni, enda mun það auka lík­urnar á far­sælli losun hafta þegar fram í sækir,“ segir í Morg­un­korni.



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None